Vill skaðabætur vegna sumarmarkaðar í Hafnarfirði SB skrifar 27. ágúst 2010 21:39 Sumarmarkaður í Hafnfarfirði. „
Ég mun leita réttar míns fyrir dómstólum," segir Jón Hlíðar Runólfsson sem telur Hafnarfjarðarbæ hafa farið á bak við sig og svikið samninga þegar bærinn kom á fót sumarmarkaði á Thorsplaninu nú í sumar. Jón Hlíðar hafi sjálfur farið þess á leit við bæinn að halda utan um sumarmarkað í sömu götur og fengið jákvæðar viðtökur. „Ætli ég hafi ekki orðið fyrir tekjutapi upp á um tvær milljónir. Ég tók kaffihús á leigu á Strandgötunni sem átti að njóta návistar við markaðinn en grundvöllurinn fyrir rekstrinum brást og ég er búinn að loka," segir Jón. Jón hefur fengið lögmannsstofuna Lög og réttur ehf til að reka málið fyrir sig. Á fundi bæjarráðs Hafnarfjarðarbæjar í gær var lagt fram erindi frá lögmannsstofunni vegna meintra vanefnda á samningu um aðstöðu fyrir sumarmarkað. „Erindi mitt um að reka markaðinn var tekið fyrir og samþykkt þann 12. febrúar síðastliðinn. Ég var kallaður á fundi og meira að segja beðinn um að opna ekki markaðinn meðan Bjartir Dagar og Víkingahátíðin stóðu yfir. Svo frétti ég það bara þann 16. júlí að bærinn sjálfur hafði ákveðið að sjá um markaðinn og tveim dögum síðar opnar svo markaðurinn. Þetta er algjört klúður." Gunnar Axel Axelsson, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar sem sat fundinn í bæjarráði, segir málið snúið. „Það voru all margir aðilar sem höfðu sýnt því áhuga að reka markað á þessum stað en á endanum tók bærinn þá ákvörðun að gera það sjálfur. Ég veit ekki til þess að gerður hafi verið formlegur samningur við þennan einstakling en ég veit til þess að honum var boðið til samstarfs eins og öðrum." Jón Hlíðar hyggst fara með málið alla leið. Hann vill að Hafnarfjarðarbær borgi sér fyrir þær tekjur sem hann varð af og gagnrýnir einnig framkvæmd bæjarins á sumarmarkaðinum. „Mín hugmynd var að dreifa markaðnum um Strandgötuna og skapa líf í götuna. Eins og þetta var þarna voru öll húsin á sömu torfunni og ekki mjög líflegt um að litast."
Mest lesið Tók sjúkrabíla þrjú korter að mæta á vettvang banaslyss Innlent Steinþór sýknaður í Hæstarétti Innlent Einar horfir til hægri Innlent Loka bandaríska sendiráðinu í Ísrael Erlent Stakk sér til sunds með sjö háhyrningum Innlent „Engin virðing borin fyrir því að þarna undir eru verðmæti og störf fólks“ Innlent Árásum á Teheran fjölgar og enn einn hershöfðinginn felldur Erlent Ný könnun Gallup: Samfylkingin bætir við sig og Framsókn þurrkast út Innlent Íranir hóta „óbætanlegu tjóni“ skerist Bandaríkin í leikinn Erlent Fjórtán tonna sprengjan sem Ísraela vantar Erlent Fleiri fréttir Þyrla Landhelgisgæslunnar aðstoðar við leitina Íslendingar sem vilja komast heim, háhyrningatorfa og blokkamyndun Ók á húsvegg Hvorki Kalli Snæ né landlæknir vilja birta bréfið Norðfjarðargöng lokuð vegna elds í bifreið Slá færri svæði í nafni sjálfbærni „Engin virðing borin fyrir því að þarna undir eru verðmæti og störf fólks“ Vesturbæjarlaug lokuð í þrjár vikur til viðbótar Bóndi spurði eftirlitsmann MAST hvort hann ætti að skjóta hann Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra hefst í dag Björguðu stjórnvana bát í Faxaflóa Steinþór sýknaður í Hæstarétti Ósk um að heita Óskir hafnað Einar horfir til hægri Harmar ákvörðun Guðmundar Enn þrefað á þingi og árásir ganga á víxl í miðausturlöndum Heyr, heyr-ið í þingsal veldur Snorra hugarangri Geðhjálp ekki á framfæri hins opinbera Tók sjúkrabíla þrjú korter að mæta á vettvang banaslyss Ný könnun Gallup: Samfylkingin bætir við sig og Framsókn þurrkast út Leituðu Sigríðar í Elliðaárdal Stakk sér til sunds með sjö háhyrningum Ný og glæsileg heilsugæslustöð í Suðurnesjabæ Segir stefna í menningarslys á Birkimel Kröfur Bandaríkjaforseta, „lágkúruleg“ blokk og hátíðarhöld Skjálfti fannst í Hveragerði Fimmtán sæmdir fálkaorðunni Veðrið setti strik í reikninginn en Lóa öðlast framhaldslíf Einn af hverjum fjórum er erlendur ríkisborgari í atvinnulífinu Hefur leit að nýjum saksóknara Sjá meira