Sumar skoðanir Beatys taldar birtingarhæfar en aðrar ekki 27. ágúst 2010 06:45 Ross Beaty
Iðnaðarráðuneytið hefur afhent Fréttablaðinu hluta af bréfi sem Ross Beaty, forstjóri Magma, sendi Katrínu Júlíusdóttur iðnaðaráðherra 18. ágúst síðastliðinn. Steingrími J. Sigfússyni, fjármálaráðherra, var sent afrit af bréfinu. Ráðuneytið afhendir ekki bréfið allt heldur hefur það með vísan í upplýsingalög fellt út mikilvæga hluta bréfsins, bæði málsgrein þar sem ráðuneytið segir að fjallað sé um viðkvæma hagsmuni Magma og eins setningu þar sem ráðuneytið segir að Ross Beaty lýsi persónulegum skoðunum. Ekkert vantar þó á að skoðanir Beatys á ýmsum málum komi fram í þeim hlutum bréfsins sem ráðuneytið telur sér heimilt að birta án þess að brotið sé gegn lögum. Í hinum opinberu köflum bréfsins lýsir hann meðal annars þeirri skoðun að hann harmi áframhaldandi deilur um aðkomu Magma að HS Orku og kveðst í einlægni hafa talið að fyrirtækinu yrði tekið fagnandi hér á landi. Þá segist hann hafa þá stefnu að búa til fyrirtæki í framleiðslu á hreinni orku á heimsvísu og segist einlægur umhverfisverndar-sinni. Það hafi tekið hann sárt að verða fyrir árásum á mannorð sitt. Í umræðum hér á landi hafi borið á alls kyns vitleysu og röngum upplýsingum. Áður er komið fram að í bréfinu býður Beaty íslenskum stjórnvöldum til viðræðna um að þau eignist rétt til að kaupa hlut í fyrirtækinu og til þess að endurskoða þann tíma sem fyrirtækið fær nýtingarrétt á auðlindum á Reykjanesi. Þá greindi Fréttablaðið frá því í gær að í bréfinu lýsi Beaty þeirri skoðun að hann vilji síður selja græna orku sem HS Orka framleiðir til álvers Norðuráls. Setninguna með þeirri skoðun Beatys er ekki að finna í hinni ritskoðuðu útgáfu bréfsins sem iðnaðarráðuneytið gerði opinbera í gær. - pg
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Erlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Marius látinn laus Erlent Fleiri fréttir „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi Sjá meira