Innlent

4000 jólastjörnur brunnu

Jólastjarna
Jólastjarna
Eldur kom upp í Garðyrkjustöð Ingibjargar í Hveragerði klukkan hálf sjö í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er talið að kviknað hafi í geymsluskúr sem er samliggjandi við garðyrkjustöðina. Engin slys urðu á fólki.

Margir hringdu í lögreglu og tilkynntu um sprengingu í húsinu en mikill eldur var í húsinu og gekk greiðlega að slökkva hann. Slökkvistarfi var lokið um klukkan átta í morgun. Um fjögur þúsund jólastjörnur voru ræktaðar í húsinu sem voru um það bil að fara á markað. Þær eru allar ónýtar. Lögreglan rannsakar brunann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×