Ríkisendurskoðun: Það þarf að efla allt eftirlit með þjónustu við fatlaða 27. ágúst 2010 13:14 Það þarf að efla allt eftirlit með þjónustu við fatlaða. Myndin er úr safni og tengist ekki fréttinni beint.
Samþykkja þarf heildarstefnu um þjónustu við fatlaða og tryggja samræmi hennar milli stofnana og landshluta. Þá þarf að efla allt eftirlit með starfseminni samkvæmt úttekt Ríkisendurskoðunar. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar segir að samkvæmt fjárlögum munu framlög til þjónustu við fatlaða nema samtals 11,2 ma.kr. á þessu ári. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar er bent á ýmsa veikleika í skipulagi og stjórnun málaflokksins. Þannig liggi t.a.m. ekki fyrir formlega samþykkt heildarstefna um hann og fjárveitingar taki ekki mið af reglulegu mati á þörf fyrir þjónustu. Einnig sé eftirliti með starfseminni ábótavant og því ekki tryggt að jafnræði ríki meðal þjónustuþega. Svæðisskrifstofur sjá um að veita þjónustu við fatlaða í umboði félags- og tryggingamálaráðuneytisins. Að auki hefur ráðuneytið samið við fimm sveitarfélög eða byggðasamlög um að veita þjónustuna gegn greiðslum úr ríkissjóði. Í skýrslunni kemur fram að ekki liggi fyrir með hvaða hætti þessir samningar hafi verið uppfylltir. Áformað er að flytja málaflokkinn alfarið frá ríki til sveitarfélaga í byrjun næsta árs. Ráðuneytið mun þó eftir sem áður bera ábyrgð á yfirstjórn hans og hafa eftirlit með þjónustunni. Þrátt fyrir þessi áform liggur ekki fyrir mat á því hvaða ávinningi flutningurinn mun hugsanlega skila og telur Ríkisendurskoðun það ámælisvert. Í skýrslunni er bent á ýmsar leiðir til að bæta stjórnun málaflokksins. Meðal annars þurfi að samþykkja formlega heildarstefnu þar sem fram komi skýr forgangsröðun, aðgerðaáætlun og mælikvarðar á árangur. Einnig þurfi að tryggja samræmi þjónustunnar milli stofnana og landshluta og að fjárveitingar til hennar taki mið af reglulegu mati á þjónustuþörf. Þá sé brýnt að bæta allt eftirlit með þjónustunni. Loks þurfi stjórnvöld að tryggja að unnt verði að meta mögulegan ávinning af flutningi málaflokksins frá ríki til sveitarfélaga. Ýmsar fleiri ábendingar er að finna í skýrslunni, m.a. um nauðsyn þess að hlutverk svæðisráða og trúnaðarmanna verði endurskoðað og að mat á þjónustuþörf einstaklinga verði samræmt.
Mest lesið Heimsótti bráðamóttökuna 292 sinnum á fimm árum Innlent Sambandið stormasamt og lítið útlit fyrir að gjáin sé að minnka Innlent Agnes var meira en bara morðingi Innlent Ellefu ára drengur lést eftir að hafa vaknað með leðurblöku á andlitinu Erlent Blóðug föt á vettvangi þar sem lögreglan var með viðbragð Innlent Siggi stormur spáir góðu veðri um allt land Veður Fimm heitum pottum lokað í Laugardalslaug Innlent Reyndist ekki vera hópuppsögn Innlent Ekki í fyrsta sinn sem brugðið er á leik með liminn Innlent Vasaþjófar sem herja á ferðamenn engir amatörar Innlent Fleiri fréttir Blóðug föt á vettvangi þar sem lögreglan var með viðbragð Sambandið stormasamt og lítið útlit fyrir að gjáin sé að minnka Krefjandi sjúkraflug milli Íslands og Grænlands Ráðherra undir þrýstingi, eldsneytismarkaðurinn til skoðunar og pottum lokað Ekki í fyrsta sinn sem brugðið er á leik með liminn Vill að ríkið taki við sölu vímuefna Fimm heitum pottum lokað í Laugardalslaug Heilsustofnunin í Hveragerði fær langtímasamning Heimsótti bráðamóttökuna 292 sinnum á fimm árum Reyndist ekki vera hópuppsögn Frumniðurstöður kalli á dýpri umræðu um verðlagningu olíufélaganna Tugir vilja feta í fótspor Fannars Vasaþjófar sem herja á ferðamenn engir amatörar Villti á sér heimildir sem eftirlitsmaður Ekki hægt að fullyrða að bensínlækkunin hafi skilað sér Ein hópuppsögn í júní Koma eigi í veg fyrir skólaforðun barna með samræmdum viðbrögðum Flúði á Hopp-deilibíl eftir innbrot og ók yfir göngubrú Agnes var meira en bara morðingi Saka ríkisstjórnina um svik Nemendum mismunað með ósamræmi einkunna Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Klausturbleikjan fæst ekki lengur Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Fjórtán ný félög flytja í Mannréttindahúsið Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Lokuðu götu á Ólafsfirði vegna tilkynningar um skotvopn Sjá meira