Aðeins 30% upp í Icesave ef kröfuhafar vinna mál gegn slitastjórn Þorbjörn Þórðarson skrifar 28. maí 2010 18:30
Alþjóðlegir bankar hafa borið ágreining við slitastjórn Landsbankans undir dómstóla til að hnekkja því að innstæður séu forgangskröfur. Ef þeir vinna málið fæst aðeins 30 prósent upp í Icesave af eignum Landsbankans. Stærstu einstöku kröfurnar í þrotabú Landsbankans koma annars vegar frá Tryggingarsjóði innstæðueigenda í Bretlandi (FSCS) upp á 850 milljarða króna og hins vegar Seðlabanka Hollands (DNB) upp á 290 milljarða, eða samtals rúmlega 1100 milljarðar króna. Slitastjórn Landsbankans samþykkti kröfurnar sem forgangskröfur á grundvelli heimildar í neyðarlögunum. Almennir kröfuhafar Landsbankans, m.a stórir bankar og skuldabréfaeigendur, sætta sig ekki við það og hafa því stefnt málinu fyrir dóm á grundvelli heimildar í lögum um gjaldþrotaskipti. Ljóst er að ef Héraðsdómur Reykjavíkur fellst á þá kröfu hóps alþjóðlegra banka og skuldabréfaeigenda að kröfur sparifjáreigenda verði ekki samþykktar sem forgangskröfur verður það miklu hærri upphæð sem mun standa ógreidd vegna Icesave heldur en ef kröfurnar yrðu samþykktar. Með því að bera ágreining um ákvörðun slitastjórnar undir dómstóla verður tekist á um ellefu hundruð milljarða og lögmæti neyðarlaganna, því almennir kröfuhafar Landsbankans telja neyðarlögin ganga í berhögg við stjórnarskrána og alþjóðlegar skuldbindingar sem íslenska ríkið hefur gengist undir. Löggjafanum hafi því ekki verið heimilt að taka sparifjáreigendur fremst í kröfuröð með því að gera innstæður að forgangskröfum. "Ef að niðurstaða dómstóla verður á þann veg að það sé ekki viðurkenndur forgangur fyrir þessum kröfum þá yrðu þær væntanlega samþykktar sem almennar kröfur og stæðu þá jafnfætis skuldabréfum, millibankalánum og slíku," segir Kristinn Bjarnason, formaður slitastjórnar Landsbankans. Búist er við að 90 prósent fáist úr þrotabúinu upp í forgangskröfur í dag."Ef að forgangurinn myndi falla niður þá yrðu heimturnar 30-35 prósent sem yrði greiðsla upp í almennar kröfur," segir Kristinn. Þeir kröfuhafar, aðallega stórir alþjóðlegir bankar og skuldabréfaeigendur, sem mótmæla ákvörðun slitastjórnar að veita innstæðunum forgang eiga að skila greinargerð hinn 11. júní næstkomandi. Ragnar Aðalsteinsson, hæstaréttarlögmaður, sem gætir hagsmuna þeirra varð ekki við ósk fréttastofu um viðtal. Ljóst er að ef kröfuhafarnir sem vilja hnekkja ákvörðun slitastjórnar vinna málið setur það viðræður um Icesave í nýtt samhengi, en hingað til hefur verið gengið út frá því að forgangur innstæðueigenda sé til staðar. Dómstólar hafa hins vegar ekki enn skorið úr um lögmæti neyðarlaganna. Íslenska ríkið hefur staðið í samningaviðræðum við Breta og Hollendinga vegna lágmarkstryggingarinnar, þ.e 20.887 evrum á hvern innstæðueigenda. Allt umfram það eru kröfur sem innstæðueigendur og framsalshafar krafna vegna innstæðna, t.d tryggingarsjóðurinn í Bretlandi, gera í þrotabú Landsbankans.
Mest lesið Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Innlent Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Innlent Þúsundir syrgja í Tehran og Trump segir æðstaklerkinn ljúga Erlent Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Innlent Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Innlent Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Innlent Allt að sautján stiga hiti í dag Veður „Þurfum að huga að forvörnum“ Fréttir Segir ásakanir kjaftæði og íhugar meiðyrðamál Innlent Steini frá Straumnesi látinn Innlent Fleiri fréttir Vonar að Rauði krossinn endurskoði afstöðu sína Segir ásakanir kjaftæði og íhugar meiðyrðamál Átök í Sósíalistaflokknum, þinglokaviðræður og síðasti dagur Litlu kaffistofunnar Veiðigjöld ekki á dagskrá þingfundar í dag Gripinn við innbrot og bíl ekið inn í búð Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Glænýr leikskóli í Mosfellsbæ heitir Sumarhús Verðbólguvonbrigði, hraðakstur og kokkur með keppnisskap Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Segulómtækið enn óvirkt og beðið eftir þúsund lítrum af helíni „Allar kannanir eru með einhverja óvissu“ Steini frá Straumnesi látinn Áfram frestað meðan formenn funda Birgir Ármannsson kominn með málflutningsréttindi Þingmenn ekki svo heppnir að fá tvöföld laun Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Helgi leiðir nefnd um atvinnumál í Norðurþingi Nú má heita Kareem Link Baggio og Anóra Vava Star Kerfið bilaði og atkvæði greidd upp á gamla mátann Ánægja með gjaldfrjálsar skólamáltíðir en fjármögnunin áskorun Verðbólga eykst og Alþingi í óvissu Gerðu úttekt á skrifstofu Ríkissáttasemjara Stærsti árgangur sögunnar fer í framhaldsskóla: „Það verður þétt setið í skólastofunni“ Sjá meira