Enginn borgarstjóri í Bústaðakirkju þessa aðventuna 6. desember 2010 14:43 Pálmi segir Jón hafa tekið boðinu með mikilli gleði og vonast til að hann mæti að ári
Frá því Bústaðakirkja var vígð fyrir 39 árum hefur nýr borgarstjóri verið viðstaddur aðventukvöld í kirkjunni á fyrsta sunnudag aðventu, með örfáum undantekningum. Til stóð að Jón Gnarr myndi halda hefðinni við en eftir veikindi hans nýverið þurfti að fækka verkefnum og var heimsókn á aðventukvöldið eitt af því sem tekið var af dagskrá borgarstjóra. Séra Pálmi Matthíasson, sóknarprestur í Bústaðakirkju, segist hafa hitt Jón þegar hann tók við sem borgarstjóri og þá boðið honum að mæta á aðventukvöldið í ár. „Hann tók þetta að sér með mikilli gleði. Þetta er hans gamla sóknarkirkja og hann er alinn upp hér nokkrum húsum frá," segir Pálmi. Eftir glímu Jóns Gnarr við veikindi og vist hans á spítala nýverið var ljóst að létta þurfti á honum og var verkefnum hans því fækkað, að læknisráði. Meðal þess sem lenti undir niðurskurðarhnífnum var heimsóknin í Bústaðakirkju. Pálmi segir þessa hefð að fá nýjan borgarstjóra til að vera á aðventukvöldi kirkjunnar vera afar skemmtilega og að hún hafi eiginlega skapast alveg óvænt eftir að borgarstjóri Reykjavíkur var þar við messu fyrsta starfsár kirkjunnar. Síðan þá hefur hver nýr borgarstjóri komið í Bústaðakirkju fyrir jólin, að sögn Pálma, ef frá eru talin þau Steinunn Valdís Óskarsdóttir og Ólafur F. Magnússon. Pálmi bindur þó vonir við að Jón Gnarr komi næstu jól fyrst hann var vant við látinn þetta árið. „Hann segist vera tilbúinn til að koma á næsta ári ef hann verður enn borgarstjóri," segir Pálmi.
Mest lesið Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Innlent Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Innlent Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Erlent „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Innlent Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Innlent Ákærður fyrir að veiða minka Innlent „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Innlent Telja samkomulag líklegt á næstu dögum Erlent Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Innlent Fleiri fréttir „Það má ekki eyða peningum sem Alþingi hefur ekki úthlutað“ „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Breytt verklag útskýri hærri tölur í áhættumati Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Mælti sér mót við barn og réðst á það Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Sættir sig ekki við niðurstöðu klofins Mannréttindadómstóls Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Herjólfur siglir frá Landeyjum og um þrjú prósent hjá Félagsbústöðum með tekjur umfram skilyrði Allt í blússandi botni í Bolungarvík þrátt fyrir lokun Kjörbúðarinnar Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Vonarneisti eftir erfiðan vetur Erla Björg ráðin menningarritstjóri Rúv Veðsjúkir giska á að Hildur verði næsti borgarstjóri Enn aðeins hægt að sigla til Landeyjahafnar við kjöraðstæður Sjá meira