Íslendingar björguðu manni úr sprungu á Suðurskautinu 22. nóvember 2010 15:27 Ekki hafa borist myndir frá aðgerðinni en hér má sjá búnaðinn sem notaður var þegar hann var prófaður á Íslandi MYND/Arctic trucks
Starfsmenn frá Arctic Trucks á Íslandi taka nú þátt í leiðangri á Suðurskautslandinu, en í gærkvöldi náðu þeir á sjálfan Suðurpólinn, fyrstir leiðangra á þessu tímabili. Á föstudaginn í síðustu viku gerðist sá atburður að starfsmaður ferðaþjónustufyrirtækis í nágrenni Novo féll ofan í sprungu. Í tilkynningu frá Arctic Trucks segir að maðurinn hafi ákveðið að fara í göngu um svæðið snemma morguns og þegar hann skilaði sér ekki til baka ákváðu félagar hans að svipast um eftir honum. „Þeir röktu spor hans í snjónum að sprungu og þegar þeir kölluðu niður í hana kom í ljós að maðurinn hafði fallið langt niður í sprunguna og sat þar fastur. Eftir margar árangurslausar björgunartilraunir, þar sem meðal annars var reynt að draga hann upp með snjósleða, voru starfsmenn Arctic Trucks sem voru í Novo, kallaðir til aðstoðar." „Farið var á tveimur bílum frá Arctic Trucks og á annan bílinn var settur sérútbúinn krani sem fyrirtækið hefur hannað. Bílarnir voru bundnir saman með 40 metra millibili og öðrum bílnum ekið út á brún sprungunnar. Með hjálp spils og kranans fór einn maður niður í sprunguna með nauðsynlegan búnað til að losa fótleggi mannsins sem fest höfðu mjög illa." Að sögn Eyjólfs Más Teitssonar og Freys Jónssonar starfsmanna Arctic Trucks sem tóku þátt í björgunaraðgerðunum, þurfti mikið átak til að losa manninn sem þá hafði verið ofan í sprungunni í um 6 klukkustundir. Það mátti ekki seinna standa því maðurinn var orðinn mjög kaldur og nokkuð ljóst að illa hefði farið ef bílanna og búnaðar þeirra hefði ekki notið við. Ekki hafa borist myndir frá sjálfri björguninni en þessar myndir sýna prófanir á sama búnaði á Íslandi sumarið 2010. Upplýsingar um leiðangrana er að finna á www.arctictrucks-expeditions.com og þar er einnig hægt að fylgjast með dagbókum frá starfsmönnum félagsins á Suðurskautinu.
Mest lesið Hljóp inn í brennandi byggingu til að bjarga nágrannanum Innlent „Hættulegasti maður Noregs“ fannst látinn í fangaklefa Erlent Sveitarstjóra ekki heimilt að banna hundahald Innlent Ellefu meðlimir glæpafjölskyldu teknir af lífi í Kína Erlent Leigubílar verði á lituðum númeraplötum Innlent Vísar ásökunum um óeðlileg afskipti í kosningabaráttu á bug Innlent Óttast vaxtahækkanir vegna sleggjunnar sem stjórnvöld „fengu í trýnið“ Innlent Spyr hvort ekki sé tími á að Palestínumenn snúi aftur í friðinn heima Innlent Hátt í sjötíu ár síðan það snjóaði eins lítið Innlent Hvort myndu þau hringja fyrst til baka í Pétur eða Hildi? Innlent Fleiri fréttir Pallborðið: Aðstoðarmenn, bæjarstjóri og viðskiptafræðingur Viðreisnarfélögum fjölgað um helming fyrir prófkjör Afi fór ekki yfir strikið með meintri rassskellingu Guðjón endurkjörinn og Simon líka Mannabreytingar samráðsfunda eins og tiltekt á jólakortalista Óttast vaxtahækkanir vegna sleggjunnar sem stjórnvöld „fengu í trýnið“ Verðbólgan eykst en loðnan gleður Bein útsending: Opinn fundur um áfallaþol Íslands Sakar mótframbjóðanda um trúnaðarbrest og kallar eftir prófkjöri Leigubílar verði á lituðum númeraplötum Alltaf til í slaginn en vonar að samningar haldi Vísar ásökunum um óeðlileg afskipti í kosningabaráttu á bug Sveitarstjóra ekki heimilt að banna hundahald Rannsaka innbrot á veitingastað og þjófnað í skartgripaverslun Hljóp inn í brennandi byggingu til að bjarga nágrannanum Hátt í sjötíu ár síðan það snjóaði eins lítið Spyr hvort ekki sé tími á að Palestínumenn snúi aftur í friðinn heima Hvort myndu þau hringja fyrst til baka í Pétur eða Hildi? 28 prósent Selfyssingar: „Eitthvað í mjólkinni eða smjörinu“ Erlendir aðilar reyni að hafa vit fyrir Íslendingum Óttast að útlendingafrumvarpið þjóni ekki tilgangi sínum Sigurvíma, hópuppsögn og auðar brekkur Boðuð í þingsal á versta tíma: „Brynjar, þú ert nú meiri gaurinn!“ Elísabet tekur tímabundið við embætti landlæknis Ákærður fyrir að taka son sinn hálstaki Metaðsókn í starfsendurhæfingu Óvissa um framboð bæði Írisar og listans Konan enn þungt haldin Leiðir samningaviðræðurnar við bændur Helgi Bjartur einnig ákærður fyrir vændiskaup Sjá meira