Hefur meiri áhyggjur af stuðningi við mótmælin en löku fylgi Þorbjörn Þórðarson skrifar 2. nóvember 2010 14:30 Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra.
Forsætisráðherra segir að erfið fjárlög útskýri minnkandi stuðning við ríkisstjórnina, en hann mælist aðeins 30 prósent. Forsætisráðherra segist hafa meiri áhyggjur af miklum stuðningi við mótmælaaðgerðir enda vinni þjóðin sig ekki úr kreppunni nema með jákvæðu hugarfari. Ríkisstjórnin hefur aðeins stuðning 30 prósent atkvæðisbærra manna, samkvæmt nýrri könnun Capacent Gallup. Fjórðungur þeirra sem studdi ríkisstjórninna hefur nú snúið við henni baki. Fylgi Samfylkingarinnar hefur ekki mælst minna í níu ár og mælist nú átján prósent en mældist 30 prósent í síðustu þingkosningum. Fyrir mánuði mældist fylgi ríkisstjórnarinnar fjörutíu prósent og hefur nú fallið um tíu prósentustig. Könnun Capacent Gallup sýndi einnig að 73 prósent þeirra sem tóku afstöðu sögðust hlynnt mótmælaaðgerðum sem hafa farið fram að undanförnu. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, segir að þessi laki stuðningur við ríkisstjórnina í könnuninni hafi ekki komið sér sérstaklega á óvart. „Við erum í mjög miklum erfiðleikum núna sem við erum að takast á við, ekki síst fjárlögin. Ég hygg að engin ríkisstjórn hafi farið í gegnum eins erfið fjárlög og við erum að gera núna, sem taka mjög á og eru mjög sársaukafull. Við erum að reyna að milda ýmsar aðgerðir á sviði heilbrigðismála og vonandi tekst okkur það. Við erum í miklum erfiðleikum með hluta heimilanna sem ekki geta nýtt sér þær aðgerðir sem við höfum lagt fram og það er mikil reiði í samfélaginu. Ég hef satt að segja miklu meiri áhyggjur af því sem kom fram í könnuninni að 73 prósent séu hlynnt mótmælaaðgerðum. Af því ber okkur öllum að hafa áhyggjur, því ef við ætlum að vinna okkur út úr þessari kreppu þá gerum við það ekki nema með jákvæðu hugarfari. Neikvæð orka drepur allt niður ef menn eru í þeim stellingum, að því er varðar mótmælin. Við eigum að reyna að sýna samstöðu til þess að reyna að vinna okkur út úr vandanum," segir Jóhanna.
Mest lesið Óku á yfir 60 og missa ökuréttindin Innlent Hreinsanir hafnar í Íran Erlent Twitter-morðinginn tekinn af lífi Erlent Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Innlent Steini frá Straumnesi látinn Innlent Stjúpsonur norska krónprinsins grunaður um nauðganir Erlent Sagði Sean Combs ekki virða svarið „Nei“ Erlent Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Innlent Ákærð fyrir að frelsissvipta dreng eftir dyraat Innlent Svona verða bílastæðagjöldin hjá Háskóla Íslands Innlent Fleiri fréttir Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Glænýr leikskóli í Mosfellsbæ heitir Sumarhús Verðbólguvonbrigði, hraðakstur og kokkur með keppnisskap Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Segulómtækið enn óvirkt og beðið eftir þúsund lítrum af helíni „Allar kannanir eru með einhverja óvissu“ Steini frá Straumnesi látinn Áfram frestað meðan formenn funda Birgir Ármannsson kominn með málflutningsréttindi Þingmenn ekki svo heppnir að fá tvöföld laun Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Helgi leiðir nefnd um atvinnumál í Norðurþingi Nú má heita Kareem Link Baggio og Anóra Vava Star Kerfið bilaði og atkvæði greidd upp á gamla mátann Ánægja með gjaldfrjálsar skólamáltíðir en fjármögnunin áskorun Verðbólga eykst og Alþingi í óvissu Gerðu úttekt á skrifstofu Ríkissáttasemjara Stærsti árgangur sögunnar fer í framhaldsskóla: „Það verður þétt setið í skólastofunni“ Flakk á fylginu og brunamótamatið vanáætlað Lögregla varar við „Nígeríubréfum“ og öðrum netglæpum Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Tilkynningum til barnaverndar fjölgaði um tíu prósent árið 2024 Tveir skjálftar úti á Reykjaneshrygg Innbrot á veitingastað og grunur um íkveikju í bifreið Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi „Menn eru alla vega að vinna með sömu tölu“ Sjá meira