Innlent

Vinnuslys: Sólarhringsvakt hjá Vinnueftirlitinu

Sólarhringsvakt er hjá Vinnueftirlitinu í Reykjavík og á Stór-Reykjavíkursvæðinu en ekki aðeins opið á skrifstofutíma eins og haldið er fram í tilkynningu frá KFC.

Í tilkynningunni segir að ekki hafi verið möguleiki á að tilkynna um vinnuslys sem varð á KFC í Kópavogi fyrr en skrifstofan opnaði í morgun.

Þetta segir Steinar Harðarson, umdæmisstjóri Vinnueftirlitsins í Reykjavíkurumdæmi að sé ekki rétt. Sólarhringsvakt sé hjá embættinu og því hægt að tilkynna um slys af þessum toga strax eftir að þau hafi gerst.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×