Innlent

Þingkonur hvetja Marinó til að endurskoða afsögn

Marinó G. Njálsson.
Marinó G. Njálsson.
Þingkonurnar Eygló Harðardóttir, Lilja Mósesdóttir og Margrét Tryggvadóttir úr Framsóknarflokki, VG og Hreyfingunni, hvetja Marinó G. Njálsson stjórnarmann úr Hreyfingunni til þess að endurskoða þá ákvörðun sína að segja sig úr stjórn Hagsmunasamtaka Heimilanna. Marinó sagði sig úr stjórninni vegna fyrirhugaðrar umfjöllunar Fréttatímans um skuldamál hans. Í sameiginlegri yfirlýsingu þingkvennanna segir að Marinó hafi verið beittur málsvari félagsmanna í samtökunum sem og annarra skuldsettra heimila.

„Yfirlýstur tilgangur samtakanna er að vera frjáls og óháð hagsmunasamtök á neytendasviði, til varnar og hagsbóta fyrir heimilin í landinu. Helstu skammtímamarkmið samtakanna eru að taka á brýnum fjárhagsvanda heimilanna í landinu, vegna þess ástands sem skapast hefur í efnahagsmálum og forða heimilum frá ósanngjarnri eignaupptöku, óbærilegum skuldaklyfjum og upplausn," segir ennfremur.

Þær benda á lífskjararannsókn Hagstofu Íslands þar sem fram kemur að næstum helmingur heimila eigi erfitt með að ná endum sagma. „Eðlilegt er að baráttumenn fyrir hagsmunum hafi hagsmuna að gæta á því sviði. Eins má gera ráð fyrir að stjórnarmenn Öryrkjabandalagsins séu öryrkjar, stjórnarmenn í launþegahreyfingu launþegar og stjórnarmenn í Blaðamannafélaginu fjölmiðlamenn. Því ætti ekki að koma neinum á óvart að stjórnarmenn Hagsmunasamtakanna skuldi, líkt og 2/3 heimila landsins."

Þá segja þær að sérstök fréttaumfjöllun um skuldastöðu einstakra stjórnarmanna hljóti að vekja upp spurningar um „hvort verið sé að fara í manninn, en ekki málefnið."

„Skuld er ekki skömm og má ekki vera skömm," bæta þær við. „Því miður hefur alltof oft heyrst í umræðunni að skuldarar séu óráðsíumenn og séu fyrst og fremst að reyna að hygla sjálfum sér í baráttu sinni. Slíkur málflutningur er að okkar mati ómálefnalegur og dæmir sig sjálfur.

Við hvetjum Marinó til að endurskoða ákvörðun sína um að segja sig úr stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna og fjölmiðla til að íhuga hver sé tilgangur umfjöllunnar um persónulega hagi talsmanna hagsmunasamtaka hverju sinni."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×