Innlent

Þingflokksfundur með Ingibjörg Sólrúnu hafinn

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir situr á fundi með gömlu félögunum á óformlegum fundi.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir situr á fundi með gömlu félögunum á óformlegum fundi.

Fundur þingflokks Samfylkingarinnar með Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, fyrrverandi utanríkisráðherra, er hafinn. Fundurin er haldinn á skrifstofu Samfylkingarinnar á Hallveigarstígnum og hófst klukkan átta en hann er óformlegur.

Björgvini G. Sigurðssyni var einnig boðið á fundinn en hann kaus að mæta ekki.

Umræðuefni fundarins eru yfirvofandi ákærur á hendur ráðherrunum en nefnd á vegum Alþingis sem átti að draga lærdóm af skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Þingnefndin lagði til að Björgvin, Ingibjörg auk Geirs H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra og Árna M. Mathísesen, fyrrverandi fjármálaráðherra, yrðu ákærð fyrir afglöp í starfi.

Fundurinn átti að fara fram fyrr í vikunni en var frestað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×