Innlent

Fleiri aka yfir á rauðu ljósi

Færri voru teknir fyrir ölvun við akstur í ágústmánuði en á sama tíma í fyrra og nemur munurinn 29 prósentum. Líkamsárásum fækkaði um 29%, fíkniefnabrotum um 11% og eignaspjöllum um 2%.

Þetta kemur fram í afbrotatölfræði Ríkislögreglustjóra fyrir ágúst 2010. Til samanburðar er þar miðað við breytingu frá sama mánuði árið á undan.

Áfengislagabrotum fjölgaði í ágústmánuði um 25%, akstri gegn rauðu ljósi um 33% og nytjastuldum um 3%.

Hegningarlagabrotum hefur fækkað á milli ára og voru þau 1.248 í ár en 1.428 á liðnu ári. Umferðarlagabrotin voru 5.296 en fóru yfir 6 þúsund árin 2007 og 2008. Fíkniefnabrot voru 106 og hefur fækkað jafnt og þétt frá árinu 2006. Hraðakstursbrot voru 4.268 en þeim fækkaði um 5% milli ára. Innbrotum fækkaði um 23% en þjófnuðum fjölgaði lítillega, eða um 3%.

Í haust verður gefin út afbrotatölfræði ríkislöglreglustjóra fyrir árið 2009. Þar kemur meðal annars fram að heildarfjöldi brota er nokkuð svipaður milli ára. Hegningarlagabrotum hefur þó fjölgað nokkuð. Á árinu 2009 voru þau 15.966 en 14.578 árið 2008. Þessa aukningu má að mestu rekja til fjölgunar auðgunarbrota en innan þeirra falla meðal annars innbrot og þjófnaðir. Hraðakstursbrot eru 78% allra umferðarlagabrota. Þau voru 43.000 á síðasta ári og hafa aldrei verið fleiri.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×