Innlent

Tæplega tveggja vikna gæsluvarðhald

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Sexmenningarnir sem voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna stórfellds fjársvikamáls í gær eru meðal annars grunaðir um brot á virðisaukaskattslögum, segir Jón HB. Snorrason, yfirmaður lögfræði- og ákærusviðs hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við Vísi.

Hann segir að mennirnir hafi verið úrskurðaðir í misjafnlega langt gæsluvarðhald. Þau lengstu nái fram í þarnæstu viku. Hann segir að verið sé að kanna hvort að brotin tengist rekstri einhverra fyrirtækja en vill ekki gefa upp hverskonar fyrirtæki það séu.

Níu manns voru handteknir vegna rannsóknar málsins en þremur þeirra hefur verið sleppt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×