Innlent

Níðþungur dómur yfir kannabisræktanda

Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki beint.
Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki beint.

Dómur yfir karlmanni var þyngdur verulega í Hæstarétti í dag en hann var sakfelldur fyrir vörslur á 322 kannabisplöntum ætluðum til söludreifingar og fyrir að hafa um nokkuð skeið staðið að ræktun þeirra.

Maðurinn var dæmdur í þriggja mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í desember á síðasta ári. Hæstiréttur þyngir þennan dóm hinsvegar verulega og hlýtur maðurinn árs fangelsi. Dómurinn er að auki óskilorðsbundinn.

Í niðurstöðu Hæstaréttar segir að samkvæmt matsgerð sem lá fyrir í málinu mátti ætla að plönturnar gætu gefið af sér frá um 19 kíló af maríjúana og 322 grömm af hassolíu, miðað við 60 prósent innihald THC.

Við ákvörðun refsingar mannsins var litið til eðlis og umfangs brots hans.

Var brotið vel skipulagt og þurfti maðurinn að koma sér upp sérútbúnu húsnæði og leggja vinnu í ræktun plantnanna. Þá var litið til þess að um umfangsmikla framleiðslu á fíkniefnum í sölu- og dreifingarskyni var að ræða.

Á hinn bóginn hafði það einnig áhrif á ákvörðun refsingar að maðurinn játaði brot sitt greiðlega auk þess sem hann hafði ekki áður sætt refsingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×