Innlent

Bættar samgöngur í borgum og bæjum

Mynd: Hari

Samgönguvika hófst í dag en hún er liður í evrópsktu átaki um bættar samgöngur í borgum og bæjum.  Markmið vikunnar er að hvetja fólk til umhugsunar um eigin ferðavenjur og virkja það til að nota almenningssamgöngur, hjóla eða ganga. Einnig er vikunni ætlað að hvetja stjórnvöld til að stuðla að notkun þessara samgöngumáta og fjárfesta í nauðsynlegum aðbúnaði.

Vefsíða tileinkuð samgönguvikunni hefur verið opnuð á léninu samgonguvika.is. Síðan er unnin í samvinnu umhverfisráðuneytisins og þeirra sveitarfélaga sem taka þátt í Samgönguviku að þessu sinni. Á síðunni er til dæmis hægt að skoða dagskrá Samgönguviku 16.-22. september, lesa fréttir af viðburðum vikunnar og taka þátt í getraun þar sem hægt er að vinna reiðhjól frá Erninum, ársmiða í Strætó og sundkort.

Samgönguvikan verður formlega sett í Fellaskóla kl. 14:00. Karl Sigurðsson, formaður umhverfis- og samgönguráðs Reykjavíkur, mun setja vikuna og afhenda samgöngublómið. Boðið verður upp á skemmtiatriði og veitingar. Á Seltjarnarnesi mun Varðan, slysavarnardeild kvenna, efna til umferðareftirlits við Mýrarhúsaskóla og gefa nemendum endurskinsmerki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×