Innlent

Níu manns handteknir vegna fjársvikabrota

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Níu menn hafa verið handteknir í tengslum við rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á umsvifamiklu fjársvikamáli. Sex eru í haldi lögreglu en þremur hefur verið sleppt, samkvæmt heimildum Vísis.

Málið varðar stórfelld brot á virðisaukaskattsskilum og svikum út úr skattkerfinu. Fram kemur á fréttavef Morgunblaðsins að hinir handteknu séu allt Íslendingar. Þeir hafi verið handteknir í aðgerðum lögreglunnar í gær og í fyrradag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×