Innlent

Dæmdur fyrir kannabisræktun og lásboga

Lásbogi.
Lásbogi.

Karlmaður var dæmdur í átta mánaða óskilorðsbundið fangelsi í Hæstarétti í dag fyrir að hafa haft í vörslum sínum samtals 414,3 grömm af kannabislaufum, 204 kannabisplöntur og 53,03 grömm af kannabisstönglum og hafa um nokkurt skeið ræktað kannabisplöntur.

Þá var maðurinn einnig sakfelldur fyrir brot gegn vopnalögum en lásbogi fannst á heimili mannsins.

Athygli vekur að maðurinn var dæmdur í 90 daga skilorðsbundið fangelsi til þriggja ára í Héraðsdómi Reykjavíkur. Hæstiréttur þyngir dóminn hinsvegar verulega og dæmir manninn í 8 mánaða óskilorðsbundið fangelsi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×