Innlent

Rændu dekkjum undan jeppa

Bíræfnir þjófar skrúfuðu öll fjögur hjólin undan stórum jeppa í Breiðholti í nótt og hurfu á braut með dekkinn. Vitni að þessu lét lögreglu vita sem stöðvaði mennina á bíl nokkru síðar. Þeir höfðu þá falið dekkin, en gátu vísað á þau. Við nánari athugun kom í ljós að sá sem ók bílnum var undir áhrifum fíkniefna og gista þeir nú báðir fangageymslur, jafnvel grunaðir um fleiri afbrot. Skömmu síðar var annar ökumaður stöðvaður vegna fíkniefnaaksturs, og einn til viðbótar fyrir ölvunarakstur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×