Innlent

Orkuveitan þarf ekki að greiða arð til borgarinnar

Reykjavíkurborg hefur ákveðið að falla frá kröfu sinni um arðgreiðslur Orkuveitu Reykjavíkur tímabundið. Þetta var samþykkt í borgarráði í dag að tillögu Besta flokksins og Samfylkingarinnar. Miðað er við að fallið verði frá arðgreiðslukröfunni þar til unnið hafi verið úr bráðavanda fyrirtækisins.

Í greinargerð með tillögunni segir:

„Borgarráð telur að alla jafna sé eðlilegt að gera kröfur um arð af eignum borgarinnar, enda hefur það verið gert frá stofnun OR óháð stöðu fyrirtækisins. Síðustu tvö ár samþykkti borgarstjórn að lækka þessar greiðslur um helming og við núverandi aðstæður (OR) er talin ástæða til að ganga lengra og fella þær alveg niður tímabundið." Þá segir að borgarráð feli borgarstjóra að leggja fram tillögu á væntanlegum eigendafundi OR þar sem fallið verði frá kröfunni.

„Jafnframt verði unnið að langtímastefnu um arðgreiðslu og ábyrgðargjöld OR í eigendanefnd sem nú er að störfum," segir ennfremur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×