Innlent

Hlaupari tók við viðurkenningu í kanínubúningi

S. Hafsteinn Jóhannesson mætti í kanínubúningi með pípuhatt og setti skemmtilegan svip á viðurkenningaafhendinguna, en hann var einmitt í sama búning í 10 kílómetra Reykjavíkurmaraþoninu.
S. Hafsteinn Jóhannesson mætti í kanínubúningi með pípuhatt og setti skemmtilegan svip á viðurkenningaafhendinguna, en hann var einmitt í sama búning í 10 kílómetra Reykjavíkurmaraþoninu. Mynd: Íslandsbanki

Uppskeruhátíð áheitasöfnunar Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka var haldin í gær í Ráðhúsi Reykjavíkur.

Á uppskeruhátíðinni voru afhentar viðurkenningar til þeirra hlaupara sem söfnuðu mestum áheitum. Sá einstaklingur sem safnaði hæstu upphæð var S. Hafsteinn Jóhannesson en hann safnaði 604 þúsund krónum fyrir Parkinsonsamtökin á Íslandi. Oddur Kristjánsson safnaði næstmestu eða 453.019 krónum fyrir Félag CP á Íslandi og Rakel Steinarsdóttir safnaði þriðja mest, en hún hljóp fyrir Reykjadal, sumarbúðir fatlaðra barna og safnaði 446.500 krónum.

Það boðhlaupslið sem safnaði mestu var „Stig 7" en liðið hljóp maraþon fyrir Munaðarlaus börn á Haítí og safnaði 183.000 krónum. Einnig var veitt viðurkenning til þess einstaklings sem fékk flest áheit og var það Signý Gunnarsdóttir sem safnaði fyrir Krabbameinssjúk börn, en hún fékk alls 180 áheit.

Í ár söfnuðust tæpar 30 milljónir til góðra málefna en tæpar níu milljónir söfnuðust í fyrra. Því er um þreföldun í söfnun áheita að ræða í ár. Samtals 96 góðgerðafélög tóku þátt í söfnuninni og eins og í fyrra safnaðist mest fyrir Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna, rúmar 2,2 milljónir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×