Innlent

Afrein frá Bústaðarvegi lokuð í korter

Mynd: GVA

Klukkan 10:00 verður lokað í 15 mínútur fyrir umferð af Bústaðarvegi um afrein niður á Kringlumýrarbraut til suðurs. Þarna hafa verið framkvæmdir við gerð undirgangna undanfarið og samkvæmt upplýsingum lögreglu er áætlað að ekki þurfi að loka fyrir umferð í meira en 15 mínútur.

Í tilkynningu frá Umferðarstofu eru ökumenn hvattir til að huga tímanlega að öðrum leiðum á meðan á þessu stendur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×