Yfir 100 þjóðir taka þátt í Alþjóðlegri athafnaviku Jón Hákon Halldórsson skrifar 1. nóvember 2010 17:18 Hillary Clinton er á meðal þeirra sem eru talsmenn vikunnar erlendis. Mynd/ afp.
Yfir 100 þjóðir munu taka þátt í Alþjóðlegri athafnaviku sem haldin verður í þriðja sinn dagana 15. - 21. nóvember næstkomandi. Í fréttatilkynningu frá nýsköpunar og frumkvöðlasetrinu Innovit kemur fram að aldrei áður hafi jafn margar þjóðir tekið virkan þátt í vikunni og gera aðstandendur ráð fyrir að samanlagt verði skipulagðir hátt í 40 þúsund fjölbreyttra viðburða. Markmiðið með vikunni er að hvetja til athafnasemi, frumkvöðlastarfsemi og nýsköpunar um allan heim. Talsmenn Alþjóðlegrar athafnaviku hvetja íslensku þjóðina til athafnasemi og nýsköpunar. Um allan heim taka þjóðarleiðtogar, jákvæðar fyrirmyndir í viðskiptalífinu og frumkvöðlar þátt í stærsta hvatningarátaki um nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi sem fram hefur farið í heiminum. Á Íslandi eru 30 sérlegir talsmenn vikunnar sem koma úr fjölbreyttum áttum þjóðfélagsins, en eiga það sameiginlegt að vera jákvæðar fyrirmyndir og vilja láta gott af sér leiða í atvinnusköpun á Íslandi. Í hópi talsmanna á Íslandi eru meðal annarra ráðherrar nýsköpunar- og menntamála, forsvarsmenn atvinnusamtaka, frumkvöðlar smáfyrirtækja og forstjórar nokkurra af stærri nýsköpunarfyrirtækjum þjóðarinnar. Á meðal talsmanna vikunnar erlendis eru meðal annars Hillary Clinton utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Richard Branson athafnamaður, prins Charles frá Wales ásamt fjölmörgum öðrum þjóðarleiðtogum og athafnafólki.
Mest lesið Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent Fleiri fréttir Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Sjá meira