Brýnt að bæta stöðu aldraðra hér á landi 2. nóvember 2010 03:15 Siv Friðleifsdóttir, formaður velferðarnefndar, Helgi Hjörvar, forseti Norðurlandaráðs, og Álfheiður Ingadóttir varaforseti kynntu dagskrá þingsins fyrir blaðamönnum í gær. fréttablaðið/gva
Þing Norðurlandaráðs verður sett í dag klukkan 14.30 á Grand Hóteli í Reykjavík. Alls eru 35 erlendir ráðherrar nú staddir hér á landi til þess að sitja þingið ásamt um 600 fjölmörgum embættismönnum og almennum starfsmönnum. Siv Friðleifsdóttir, formaður velferðarnefndar Norðurlandaráðs, segir eitt af mikilvægustu málunum vera aðstæður aldraðra og hvernig hægt sé að bæta þær hér á landi. Um fimmtíu prósenta líkur eru á því að stúlkubarn sem fæðist í dag hér á landi nái hundrað ára aldri. Frá árinu 1950 hefur fjöldi þeirra sem ná 80 ára aldri fjórfaldast og segir Siv að Ísland standi ekki eins vel að vígi í heimahlynningu þeirra miðað við hin Norðurlöndin. „Við erum að þjónusta í of miklum mæli inni á hjúkrunarheimilum,“ segir Siv. „Á Íslandi eru næstflest rými fyrir 65 ára og eldri, þau eru flest í Svíþjóð, og meðallegutími á hjúkrunarheimilum á Íslandi eru 3,3 ár. Á hinum Norðurlöndunum er meðallegutími á hjúkrunarheimilum tvö ár. Þetta er gríðarlegur munur.“ Siv segir þetta sýna að Íslendingar þjónusti fólk of lítið heima við og fólk fari of snemma inn á hjúkrunarheimili. „Það er búið að reikna út að eitt hjúkrunarheimili kostar 7,8 milljónir hér á Íslandi. Þú getur þjónustað manneskju heima með 25 skiptum á viku fyrir sama pening, fyrir heimahjúkrun, eða þrisvar sinnum á dag,“ segir Siv. „Allar samanburðartölur við Norðurlöndin sýna okkur svart á hvítu að við verðum að stórauka þjónustuna heima. Það er ekki eldri borgurum í hag að fara of snemma inn á hjúkrunarheimili.“ Norðurlandaráðsþingið stendur fram á fimmtudagskvöld. Kostnaður Íslands við það er um 40 milljónir króna, en það er sama upphæð og fyrir fimm árum þegar Norðurlandaráðsþingið var síðast haldið hér á landi. Helgi Hjörvar, forseti Norðurlandaráðs, segir afar mikilvægt að efla samstarf Norðurlandanna enn frekar og bendir á að tillögur Gunnars Wetterberg um Sambandsríki Norðurlandanna sé áhugaverð hugmynd sem vert sé að skoða. sunna@frettabladid.is
Mest lesið Segir ríkisvaldið hafa fallið á lyfjaprófi Innlent Bræður hvor sínum megin við hagræðinguna í borginni Innlent „Ef þessum skipum verður ógnað þá verður brugðist við því“ Innlent Þór kominn að Bandero og fylgir honum eftir Innlent Úlfar vill verða lögreglustjóri á ný Innlent Öll híbýli fullbókuð og hesthúsin verða stappfull Innlent Selja mannvirki bæjarins á flugvellinum á tólf milljónir Innlent Hafi komið líki stúlkunnar fyrir í ferðatösku Erlent „Það koma bara færri“ Innlent Drengur á slysadeild eftir árás í Laugardalslaug Innlent Fleiri fréttir Fresta framkvæmdum á brúnni vegna vætutíðar Úlfar vill verða lögreglustjóri á ný „Ef þessum skipum verður ógnað þá verður brugðist við því“ Þór kominn að Bandero og fylgir honum eftir Segir ríkisvaldið hafa fallið á lyfjaprófi Væta með köflum í flestum landshlutum Handtekinn ölvaður á rafhlaupahjóli Bræður hvor sínum megin við hagræðinguna í borginni Fræsa og malbika Reykjanesbraut í kvöld Öll híbýli fullbókuð og hesthúsin verða stappfull Selja mannvirki bæjarins á flugvellinum á tólf milljónir Sérsveitarmenn um borð í Þór „Það koma bara færri“ Einn fluttur á spítala eftir líkamsárás Bandero byrjað að senda Landhelgisgæslunni staðsetningu sína „Við sváfum ekkert, dauðhræddir á refresh-takkanum alla helgina“ „Þau tala stundum um að við ælum í gegnum puttana“ „Ætlum rétt að vona að þessi tímalína standist“ Hafa ekki gefið Landhelgisgæslunni upp staðsetningu Bandero Boðar frekari niðurskurð síðar í sumar Gefa ekki upp staðsetningu sína og Hildur boðar frekari niðurskurð Hlaut stunguáverka og var fluttur á sjúkrahús Drengur á slysadeild eftir árás í Laugardalslaug Hjólar hringinn fyrir Hringinn: Gengið vel en leiðin norður „mjög mikið pain“ Forsetinn og borgarstjórinn í Sprengisandi Réðst að hópi drengja í sundlaug Matsgerðirnar einar ekki nægar til að sanna akstur undir áhrifum slævandi lyfja Sautján ára Íslendingur dæmdur í ellefu mánaða fangelsi í Danmörku Skip Watsons komið inn í íslenska efnahagslögsögu Slösuð göngukona flutt með þyrlunni Sjá meira