Innlent

Lenging í lánum er bara ein hugmynd af mörgum

Erla Hlynsdóttir skrifar
Ragnheiður Elín leggur áherslu á að Sjálfstæðisflokkurinn sé með fjölþættar hugmyndir til uppbyggingar samfélagsins
Ragnheiður Elín leggur áherslu á að Sjálfstæðisflokkurinn sé með fjölþættar hugmyndir til uppbyggingar samfélagsins Mynd: Vilhelm Gunnarsson
Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, segir það misskilning hjá Lilju Mósesdóttur, þingmanni vinstri grænna, að Sjálfstæðisflokkurinn ætli að leysa skuldavandann með því einu að lengja í lánum. 

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, kynnti í gær hugmyndir til að sporna við skuldavanda heimilanna. Þar sagði hann að sjálfstæðismenn vildu „...að greiðsluaðlögunarúrræðin verði einfölduð verulega og rýmkuð frá því sem nú er og að öllum sem þess óska standi til boða að lækka greiðslubyrði fasteignalána sinna um allt að 50% næstu þrjú árin gegn lengri lánstíma."

Lilja gagnrýndi hugmyndir Sjálfstæðisflokksins á Facebook-síðu sinni þar sem henni fannst undarlegt að það ætti að „leysa" skuldavandann með því að lengja í lánum. „Að mati Stiglitz er besta lausnin að lækka höfuðstól lána og versta lausnin er lánalenging!! Lenging lána veltir foresendubrestinum yfir á lántakendur sem þurfa að greiða hærri vexti fyrir lánalenginguna. Aukinn vaxtakostnaður étur upp eignarhluta fólks í fasteignum sínum," segir Lilja og vísar til orða Joseph Stieglitz, nóbelsverðlaunahafa í hagfræði.

Ragnheiður segir að þarna sé Lilja aðeins að taka út eina af 41 hugmynd sem sé ekki sanngjarnt. „Við leggjum áherslu á að fólki bjóðist ýmsir valkostir. Það er ekki hægt að smíða eina lausn fyrir alla. Þess vegna leggjum við fram þenna heildarpakka," segir hún og telur víst að hvert heimili finni þarna minnst eina lausn sem hentar.

Atvinnumálin eru Sjálfstæðisflokknum einnig hugleikin og er áherslan þar á skattalækkanir og fjölgun starfa.. „Við komum þarna með algjörlega aðra sýn en stjórnvöld eru með. Við viljum vinna okkur út úr vandanum. Við skattleggjum okkur ekki út úr kreppunni," segir Ragnheiður sem er ósátt við skattahækkanir ríkisstjórnarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×