Lenging í lánum er bara ein hugmynd af mörgum Erla Hlynsdóttir skrifar 2. nóvember 2010 15:30 Ragnheiður Elín leggur áherslu á að Sjálfstæðisflokkurinn sé með fjölþættar hugmyndir til uppbyggingar samfélagsins Mynd: Vilhelm Gunnarsson
Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, segir það misskilning hjá Lilju Mósesdóttur, þingmanni vinstri grænna, að Sjálfstæðisflokkurinn ætli að leysa skuldavandann með því einu að lengja í lánum. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, kynnti í gær hugmyndir til að sporna við skuldavanda heimilanna. Þar sagði hann að sjálfstæðismenn vildu „...að greiðsluaðlögunarúrræðin verði einfölduð verulega og rýmkuð frá því sem nú er og að öllum sem þess óska standi til boða að lækka greiðslubyrði fasteignalána sinna um allt að 50% næstu þrjú árin gegn lengri lánstíma." Lilja gagnrýndi hugmyndir Sjálfstæðisflokksins á Facebook-síðu sinni þar sem henni fannst undarlegt að það ætti að „leysa" skuldavandann með því að lengja í lánum. „Að mati Stiglitz er besta lausnin að lækka höfuðstól lána og versta lausnin er lánalenging!! Lenging lána veltir foresendubrestinum yfir á lántakendur sem þurfa að greiða hærri vexti fyrir lánalenginguna. Aukinn vaxtakostnaður étur upp eignarhluta fólks í fasteignum sínum," segir Lilja og vísar til orða Joseph Stieglitz, nóbelsverðlaunahafa í hagfræði. Ragnheiður segir að þarna sé Lilja aðeins að taka út eina af 41 hugmynd sem sé ekki sanngjarnt. „Við leggjum áherslu á að fólki bjóðist ýmsir valkostir. Það er ekki hægt að smíða eina lausn fyrir alla. Þess vegna leggjum við fram þenna heildarpakka," segir hún og telur víst að hvert heimili finni þarna minnst eina lausn sem hentar. Atvinnumálin eru Sjálfstæðisflokknum einnig hugleikin og er áherslan þar á skattalækkanir og fjölgun starfa.. „Við komum þarna með algjörlega aðra sýn en stjórnvöld eru með. Við viljum vinna okkur út úr vandanum. Við skattleggjum okkur ekki út úr kreppunni," segir Ragnheiður sem er ósátt við skattahækkanir ríkisstjórnarinnar.
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Fleiri fréttir Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Sjá meira