Hækkun gjaldskrár kemur í bakið á OR 30. ágúst 2010 05:00 Gylfi Arnbjörnsson.
Guðlaugur Gylfi Sverrisson, fyrrverandi stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur, segir ekki þörf á því að fara jafn bratt í hækkanir á gjaldskrá Orkuveitunnar og raun ber vitni. Sýnt hafi verið fram á að mögulegt sé að fara mun hægar í sakirnar til að standa undir skuldbindingum fyrirtækisins til skamms tíma. Mat Guðlaugs gengur þvert á niðurstöðu stjórnar og orð núverandi stjórnarformanns, Haraldar Flosa Tryggvasonar. „Ég vil meina að menn hafi valið hag fyrirtækisins á kostnað neytenda,“ segir Guðlaugur. Guðlaugur segir það vitað mál að vandræði Orkuveitunnar felist í gengi krónunnar. „Ef gengið skríður saman um 20 prósent myndi eigið fé félagsins batna um 44 milljarða.“ Hann telur að slík styrking krónunnar myndi þurrka rúmlega 50 milljarða af skuldum fyrirtækisins. Guðlaugur segir að hækkunina, sem tekur gildi 1. október, hafi fráfarandi stjórn ætlað að ná á þremur árum. „Ég vildi líka komast hjá því að greiða arð. 800 milljónir, sem greiddar voru síðast, jafngilda fimm prósent hækkun gjaldskrár.“ Guðlaugur segir Orkuveituna leiðandi á markaði og allar aðrar veitur muni koma á eftir með miklar hækkanir. Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambands Íslands, telur það skammsýni hjá stjórn OR að hækka gjaldskrá sína jafn mikið og raun ber vitni. „Þetta mun grafa undan krónunni en á föstudaginn var tilkynnt að rekstrarbati þess að undanförnu sé tilkominn vegna styrkingar krónunnar. Það myndi skipta meira máli fyrir Orkuveituna að koma á trúverðugum stöðugleika en að stunda svona leikfimi.“ OR birti hálfsársuppgjör sitt á sama fundi og ákvörðun var tekin um miklar gjaldskrárhækkanir. Rekstur OR skilaði 5,1 milljarðs króna hagnaði á fyrstu sex mánuðum ársins. Á fyrsta ársfjórðungi var hins vegar 2,1 milljarðs króna tap á rekstrinum. Í fréttatilkynningu fyrirtækisins segir að helsta ástæða rekstrarbatans sé styrking krónunnar. Skuldir OR eru um 230 milljarðar. OR tilkynnti um gjaldskrárhækkanir eftir stjórnarfund fyrirtækisins á föstudag sem nema 28,5 prósentum á meðalnotanda. Gjald fyrir dreifingu rafmagns hækkar um 40 prósent, rafmagnsverð um 11 prósent og verð á heitu vatni um 35 prósent. svavar@frettabladid.is Guðlaugur Gylfi Sverrisson
Mest lesið Heimsótti bráðamóttökuna 292 sinnum á fimm árum Innlent Sambandið stormasamt og lítið útlit fyrir að gjáin sé að minnka Innlent Agnes var meira en bara morðingi Innlent Ellefu ára drengur lést eftir að hafa vaknað með leðurblöku á andlitinu Erlent Blóðug föt á vettvangi þar sem lögreglan var með viðbragð Innlent Siggi stormur spáir góðu veðri um allt land Veður Fimm heitum pottum lokað í Laugardalslaug Innlent Reyndist ekki vera hópuppsögn Innlent Ekki í fyrsta sinn sem brugðið er á leik með liminn Innlent Vasaþjófar sem herja á ferðamenn engir amatörar Innlent Fleiri fréttir Blóðug föt á vettvangi þar sem lögreglan var með viðbragð Sambandið stormasamt og lítið útlit fyrir að gjáin sé að minnka Krefjandi sjúkraflug milli Íslands og Grænlands Ráðherra undir þrýstingi, eldsneytismarkaðurinn til skoðunar og pottum lokað Ekki í fyrsta sinn sem brugðið er á leik með liminn Vill að ríkið taki við sölu vímuefna Fimm heitum pottum lokað í Laugardalslaug Heilsustofnunin í Hveragerði fær langtímasamning Heimsótti bráðamóttökuna 292 sinnum á fimm árum Reyndist ekki vera hópuppsögn Frumniðurstöður kalli á dýpri umræðu um verðlagningu olíufélaganna Tugir vilja feta í fótspor Fannars Vasaþjófar sem herja á ferðamenn engir amatörar Villti á sér heimildir sem eftirlitsmaður Ekki hægt að fullyrða að bensínlækkunin hafi skilað sér Ein hópuppsögn í júní Koma eigi í veg fyrir skólaforðun barna með samræmdum viðbrögðum Flúði á Hopp-deilibíl eftir innbrot og ók yfir göngubrú Agnes var meira en bara morðingi Saka ríkisstjórnina um svik Nemendum mismunað með ósamræmi einkunna Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Klausturbleikjan fæst ekki lengur Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Fjórtán ný félög flytja í Mannréttindahúsið Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Lokuðu götu á Ólafsfirði vegna tilkynningar um skotvopn Sjá meira