Dæmdur til þess að greiða meindýraeyði 30. ágúst 2010 16:08 Héraðsdómur Reykjavíkur.
Karlmaður var dæmdur í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur til þess að greiða meindýraeyði 38 þúsund krónur auk 150 þúsund krónur í málskostnað. Meindýraeyðirinn tók að sér að eyða veggjalús í íbúð mannsins ári 2009. Það var að beiðni móður mannsins sem meindýraeyðirinn var kvaddur á vettvang. Sérstaklega er tekið fram í dóminum að hann hafi hitt móður mannsins og konu hans sem er af asískum uppruna og skildi ekki vel íslensku. Tvö rúm eða dýnur voru fjarlægð úr íbúðinni. Annað rúmið var flutt í burtu en hitt sett út í garð. Meindýraeyðirinn aðstoðaði konurnar við að setja í poka föt og annað sem þær ætluðu að taka og sagt þeim að þvo við að minnsta kosti 50 gráðu hita eða frysta. Ekki hafi verið tekið úr fataskápum og kvaðst meindýraeyðirinn hafa beðið konurnar um að tala við manninn um framhaldið og honum verið sagt að hann myndi hringja og þá gæti hann klárað verkið. Það var þó aldrei gert fyrr en meindýraeyðirinn hafði samband við manninn. Fékk hann þá þær upplýsingar að maðurinn, sem var stefnt, væri ósáttur við vinnubrögðin hans og fékk annan meindýraeyði til þess að ljúka verkinu. Svo virðist vera að sá misskilningur hafi verið uppi að meindýraeyðirinn væri búinn að ljúka verkinu sem var ekki raunin. Héraðsdómur tekur undir sjónarmið meindýraeyðisins og dæmir húseigandann til þess að greiða honum 38 þúsund krónur eins og fyrr segir.
Mest lesið Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður Innlent Sendi vitlaust skjal á dómarann og nú þarf að flytja málið upp á nýtt Innlent Hvetur til allsherjarverkfalls ef Trump reynir að stela þingkosningunum Erlent Grunaður um grófa spillingu í kjölfar birtingar Epstein-skjala Erlent Mátti ekki kalla Samtökin '78 „hagsmunasamtök barnaníðinga“ Innlent Sorglegt að sonurinn sé aðeins tala á blaði Innlent Fór ekki á milli mála að Jón Þór ætlaði að drepa hana Innlent Aldrei eins lítið í læknum og fuglunum er tekið að fækka Innlent Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Innlent Ölvun og þjófnaðir Innlent Fleiri fréttir „Flókið að koma saman framboði með fjóra flokka“ Ölvun og þjófnaðir Sendi vitlaust skjal á dómarann og nú þarf að flytja málið upp á nýtt Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður „Gamlar“ kempur kenndu bridge á Laugarvatni Mátti ekki kalla Samtökin '78 „hagsmunasamtök barnaníðinga“ Aldrei eins lítið í læknum og fuglunum er tekið að fækka Sorglegt að sonurinn sé aðeins tala á blaði Skjálftahrina í Mýrdalsjökli „Við sáum það að þetta hreyfði við forsætisráðherra“ Fór ekki á milli mála að Jón Þór ætlaði að drepa hana Þurfa aftur að rannsaka mál tveggja barna á Múlaborg Sorglegt að vera einungis tala á blaði Konur í Framsókn sjá að sér Stjórnin treystir Margréti Enginn rökstuddur grunur um að önnur konan hafi brotið af sér Skila af sér breyttri Reykjavíkurleið í febrúar Framsóknarmenn takast hart á að tjaldabaki Mikil mótstaða íbúa á hitafundi um flutning kaffistofunnar Saka stjórnina um „óskhyggju, afneitun og ímyndaðan veruleika“ Grautfúl Kristrún og Vetrarhátíð hefst í kvöld Tíu tilkynnt um veikindi eftir að hafa borðað mat frá Vitatorgi Afturkalla endurvigtunarleyfi Brims vegna „stórfellds gáleysis“ Fimm prósent atvinnuleysi í lok árs 2025 Samningaviðræðum slitið og áframhaldandi samstarf Í-listans úr sögunni Margir sem þurfa að horfa eða hlusta til að sofna Úr fjölmiðlum í dýraverndarmál Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Aðeins eitt riðutilfelli allt síðasta ár Sjá meira