Ófyrirsjáanleg verðbólga valdi forsendubresti 19. ágúst 2010 12:11 Mynd/Anton Brink
Talsmaður neytenda segir að ef ófyrirsjáanleg verðbólga veldur forsendubresti gagnvart verktaka, þá gildi hið sama gagnvart neytendum. Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt að mögulegt sé að víkja samningi verktaka til hliðar vegna efnahagshrunsins. Íslenskir aðalverktakar höfðu gert verksamning við Eignarhaldsfélagið Fasteign um byggingu sundlauga, potta og annarra mannvirkja tengdum íþróttamiðstöð Álftaness. Þegar verkið var boðið út undir lok árs 2007 var útboðslýsingin á þann veg að engar verðbætur yrðu greiddar á samningstímanum, en tilboð Íslenskra aðalverktaka byggði á verðbólguspá sem þá lá fyrir og öðrum forsendum um aðstæður í efnahagslífinu. Fljótlega eftir að tilboðið var gert tók verðbólga hins vegar að aukast mikið, krónan féll og að lokum hrundi bankakerfið og gjaldeyrishöft voru sett á með miklum kostnaðarauka fyrir verktakann. Því stefndi verktakinn Fasteign vegna brostinna forsenda fyrir Héraðsdóm Reykjaness, en fyrir dómi hélt verktakinn því fram að engin leið hefði verið að sjá þessa atburði fyrir. Hann fór fram á að félagið greiddi sér verðbætur, ellegar myndu Íslenskir aðalverktakar tapa á annað hundrað milljónum á verkinu. Í stuttu máli féllst dómurinn á þessi rök þar sem forsenda samningsins hafi verið stöðugt verðlag og dæmdi Fasteignafélagið til að greiða verktakanum rúmar 110 milljónir í verðbætur.Eigi einnig við um neytendur Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda, segir dóminn merkilegan, en hann hefur haldið því fram að forsendubrestur hefði orðið vegna verðtryggða lána og gengistryggða. „Þarna er verið að tala um það og staðfesta gagnvart verktaka að hrunið feli í sér forsendubrest og verðbólga umfram verðbólguspá, eða verðbólgumarkmið sem er 4%, feli í sér forsendubrest. Ef að þetta á við gagnvart verktökum þá á þetta ekki síður við gagnvart neytendum sem standa auðvitað höllum fætum. Dómurinn tekur sérstaklega fram að samningsaðilar í þessu verktakamáli hafi verið sérfræðingar og vanir samningsgerð," segir Gísli. Gísli segir að ef stjórnvöld finni ekki heildstæða lausn á neytendalánum ýti dómurinn undir frekari málaferli og óvissu. Dómurinn staðfesti að neytendur hafi ekki mátt búast við jafnmikilli verðbólgu og raun ber vitni. Hún leiði til forsendubrests svo víkja megi samningum til hliðar.
Mest lesið Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent „Það er ekkert hæft í þessu“ Innlent Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Erlent Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Innlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent Birtu ekki baulið Erlent Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Erlent „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Innlent Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Innlent Flutningabílar fastir á Þröskuldum Innlent Fleiri fréttir Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi „Sorglegra en orð fá lýst“ „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Banaslys á Miklubraut og brotið leikskólakerfi LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Valgarð Már er látinn Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Yfir áttatíu milljónir í starfslokasamninga og þar af þrettán vegna starfsloka Páls Jóhann Páll fagnar því að ummæli hans séu rifjuð upp Tyrkir vilja sendiráð á Íslandi Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Opna dyr sínar vegna slyssins á Miklubraut Bakkakot rannsakað og mönnunum boðin áfallaaðstoð Sjá meira