Tengsl fundin milli erfða og legslímuflakks 13. desember 2010 15:04 Konur með legslímuflatt finna gjarnan fyrir sárum verk í kviðarholi, sársauka við egglos, samfarir og þvaglát Mynd úr safni AFP
Niðurstöður nýrrar rannsóknar benda til að tengsl séu á milli erfða og endómetríósu, eða legslímuflakks. Er þetta í fyrsta sinn sem sýnt er fram á slík tengsl. Almennt er talið að um 2 til 5% íslenskra kvenna séu með sjúkdóminn. Helstu einkenni eru sársaukafullar blæðingar og tíðaverkir, verkir í kviðarholi, sársauki við egglos, samfarir og þvaglát. Engin lækning hefur fundist við sjúkdómnum. Frekari rannsókna er þörf til þess að skilja hvað þessi genatengsl þýða en vonir standa til þess að niðurstöður rannsóknarinnar verði til þess að bæta greiningu og meðferð kvenna með endómetríósu. The International Endogene Consortium sem hefur rannsakað möguleg tengsl þarna á milli komst að þeirri niðurstöðu að breytingar á litningum 1 og 7 tengist endómetríósu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samtökum kvenna með endómetríósu. Þar kemur fram að á litningi 7 eru það gen sem stýra myndun legslímhúðarinnar og á litningi 1 er það gen sem er mikilvægt fyrir hormónastarfsemi líkamans og þróun kvenæxlunarfæra sem eru talin tengjast endómetríósu. Samkvæmt rannsókninni eru miðlungs og alvarleg tilfelli af endómetríósu frekar tengd ættgengi og þar með genum, frekar en vægari tilfelli sjúkdómsins. Breytileikinn á litningi 1 eykur líkur á miðlungs eða alvarlegri endómetríósu um 16% en breytileikinn á litningi 7 um 40%. Talið er að um 176 milljón konur um heim allan séu með endómetríósu. Legslímuflakk getur valdið ófrjósemi en um 30-40% kvenna með sjúkdóminn geta búist við að lenda í erfiðleikum með barneignir. Einungis er hægt að greina endómetríósu í kviðarholsspeglun og almennt eru hormónagetnaðarvarnir notaðar til þess að meðhöndla sjúkdóminn. Ekki er til nein lækning við sjúkdómnum enn sem komið er. Tengill: Samtök kvenna með endómetríósu
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira