Innlent

Vélstjórar hjá Hafró samþykktu kjarasamning

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Kosningu um kjarasamning VM, vegna vélstjóra á skipum Hafrannsóknastofnunar, lauk klukkan þrjú í dag og var samningurinn samþykktur með öllum greiddum atkvæðum. Í fréttatilkynningu frá VM kemur fram að megininntak samningsins sé að kjarasamningur og launakerfi vélstjóranna verði endurskoðað. Stefnt er á að ljúka þeirri vinnu í febrúar á næsta ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×