Innlent

Kanna möguleika á að metanvæða bílaflotann

Íslenskt landflutningafyrirtæki kannar nú möguleika á því að metanvæða bílaflota sinn. Þjónustustjóri Vélamiðstöðvarinnar stingur upp á að virðisaukaskattur af metanbreytingu bíla verði endurgreiddur til að ýta undir metanvæðingu.

Ingi Þór Hermannson, forstöðumaður Landflutninga, segir að tilraunir séu að hefjast við að breyta bílum svo þeir gangi fyrir gasinu til hálfs á móti díseleldsneyti, en önnur flutningafélög eru einnig áhugasöm um metanið. Jafngildi bensínlítra af metani kostar um 104 krónur nú, og því er ódýrara að keyra á því.

Ingi segir enn óvissu um hvernig metan verði skattlagt samanborið við annað eldsneyti til frambúðar, og um dreifikerfi metans, en gasið er enn aðeins selt á höfuðborgarsvæðinu. Á hinn bóginn segir hann umhverfissjónarmið einnig skipta máli, sem og að um innlendan orkugjafa sé að ræða.

Sigurður Ástgeirsson, þjónustustjóri Vélamiðstöðvarinnar stingur upp á að hið opinbera ýti undir metanvæðinguna með endurgreiðslu virðisaukaskatts á breytingunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×