Innlent

Vér mótmælum allir

Gissur Sigurðsson skrifar
Ríkið á ekki að hirða og selja veiðiheimildir.
Ríkið á ekki að hirða og selja veiðiheimildir.

Farmanna-og fiskimannasamband Íslands, Landssamband íslenskra útvegsmanna og Félag vélstjóra og málmtæknimanna mótmæla sameiginlega öllum hugmyndum um sölu ríkisins á aflaheimildum.

Í sameiginlegri yfirlýsingu þessara samtaka segir meðal annars að það sé hagur þeirra, sem nýta fiskistofnana, að dragar úr veiðum til að vernda og byggja þá upp, þegar á þarf að halda. Það grafi hinsvegar undan langtímasjónarmiðum og skynsamlegri nýtingu, ef ríkið ætli svo að hirða og selja auknar veiðiheimildir þegar, vel árar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×