Ísland í fjórða sæti yfir gæði nettenginga 27. október 2010 06:00 Suður-Kórea heldur fyrsta sæti í samanburði á gæðum og útbreiðslu nettenginga í löndum heims. Hér má sjá grunnskólabörn í sýningarsal suður-kóreska fyrirtækisins Samsung. Nordicphotos/AFP
Ísland er meðal þeirra fimm landa heims þar sem nærri 100 prósent heimila hafa háhraðatengingu við internetið. Hin löndin eru Hong Kong, Suður-Kórea, Lúxemborg og Malta. Þetta er meðal þess sem lesa má út úr nýrri könnun Saïd-viðskiptaháskólans við Oxford-háskóla í Bretlandi á þróun í gæðum nettenginga í heiminum. Könnunin er árviss og hefur verið gerð frá því árið 2008. Metin er útbreiðsla nettenginga, aðgengi að þeim, hraði á niðurhleðslu og upphali, auk fleiri þátta og löndum gefin einkunn út frá samspili þeirra. Ef tekið er meðaltal allra landanna sem könnunin náði til, en hún er gerð í 72 þjóðríkjum og 239 borgum, þá kemur í ljós að 49 prósent heimila hefur aðgang að háhraðanettenginu. Í fyrra var sú tala 47 prósent og 40 prósent árið 2008. Þá hafa orðið framfarir hvað gæði tenginga varðar, en það er metið svo að þau hafi aukist um nærri fjórðung, 24 prósent, á milli ára og um 48 prósent frá 2008. Meðalhraði niðurhals í heiminum var þannig 5.920 Kbps (kílóbit á sekúndu) í ár, miðað við 4.882 Kbps í fyrra og 3.271 Kbps árið 2008. Sama þróun hefur svo verið hvað upphleðsluhraða varðar, en hann hefur farið úr 794 Kbps 2008 í 1.345 Kbps 2009 og í 1.777 Kbps á þessu ári. Biðtími á netinu (e. latency, tíminn sem það tekur að hefja gagnasendingu frá því beiðni um það er send) hefur hins vegar aukist lítillega, í 142 millisekúndur úr 140 millísekúndum í fyrra. Staðan er hins vegar um fjórðungi betri en árið 2008, þegar biðtíminn var 189 millísekúndur. Millisekúnda er einn þúsundasti úr sekúndu. Til samanburðar má benda á að í Suður-Kóreu er meðalhraði niðurhals 33,5 megabit á sekúndu (Mbps), upphalið 17,3 Mbps og biðtími 47 millísekúndur. Ísland er meðal þeirra fjórtán landa sem sögð eru reiðubúin til að taka við „tækni morgundagsins", en þar er vísað til hluta á borð við háskerpusjónvarp á netinu og hágæða myndsamskiptatækni. Allra helstu kosta sem netið og nútímasamskipti hafa upp á að bjóða njóta hins vegar 48 lönd, samkvæmt könnuninni. Rúmur helmingur landanna hefur svo brúað „stafrænu gjána", en það lýsir sér í því að minnkandi munur er á gæðum nettenginga í stærstu borgum landa og dreifðari byggðum þeirra. Mestur er munur á tengingum í borgum og sveitum í Lettlandi, en minnstur í Japan, þar sem tengingar eru jafnvel heldur betri í sveitum en borgum.olikr@frettabladid.is
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Fleiri fréttir Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Sjá meira