Innlent

Fimmtán ára piltur smyglaði sér til landsins með Norrænu

Norræna á Seyðisfirði
Norræna á Seyðisfirði
Fjórtán eða fimmtán ára gamall unglingur kom til landsins með Norrænu í morgun. Samkvæmt Óskari Bjartmarz yfirlögregluþjóni er framburður piltsins óljós og ekki sé vitað með vissu hvaðan hann kemur en hann kennir sig við frelsishreyfinguna Polisario í Vestur-Sahara en sú hreyfing berst fyrir sjálfstæði Vestur-Sahara frá Marokkó. Pilturinn erí haldi lögreglunnar á Egilsstöðum.

Pilturinn óskar eftir hæli hér á landi þar sem lítið frelsi sé í heimilandi hans, segir Óskar í samtali við Vísi. Hann segir að tungumálaerfiðleikar gætu valdið því að uppruni hans sé óskýr. Hann var klæðalítill við komuna eða aðeins í gallabuxum og á bol. Talið er að pilturinn hafi falið sig á bílfari innan um bíla þá er einnig talið að hann hafi komist um borg í Danmörku eða í Færeyjum.

Hann verður fluttur til Reykjavíkur með flugvél í fyrramálið og vistaður á Fitjum í Reykjanesbæ. Útlendingastofnun og barnaverndaryfirvöld eru komin með málið í sínar hendur.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×