Brasilísk djass-söngkona svipt atvinnuleyfi vegna atvinnuleysis 31. ágúst 2010 11:15 „
Óvissan er verst, ég veit ekki hvað ég á að gera," segir Jussanam da Silva frá Brasilíu en hún segir Vinnumálastofnun hafa hafnað að framlengja vinnuleyfið sitt meðal annars vegna mikils atvinnuleysis. Jussanam hefur unnið í tvö ár á frístundarheimilinu Hlíðaskjóli og var þegar búin að gera starfssamning um að vinna í ár til viðbótar á heimilinu. Aftur á móti hafnaði Vinnumálastofnun samningnum. Ástæðan er sú að Jussanam er nýskilin við eiginmanninn sinn. Þá fengust þær skýringar einnig að atvinnuleysið á Íslandi sé það hátt að einstaklingar af EES svæðinu ganga fyrir. Þar af leiðandi fær hún samninginn ekki samþykktan. Jussanam hefur getið sér gott orð hér landi meðal annars fyrir sönghæfileika sína. Hún hefur sungið djass með helstu djasstónlistarmönnum Íslands, meðal annars Tómasi R. Einarssyni og píanóleikaranum Agnari Má Magnússyni. Þá gaf hún út tónlistardiskinn Ela é Carioca fyrir um ári síðan. Jussanam er að vonum ósátt við að fá ekki að vinna lengur og þar af leiðandi ekki dvelja á Íslandi. „Án starfsins fæ ég enga peninga og get því ekki borgað reikningana. Ég óttast næstu mánaðamót," segir Jussanam sem bætir við: - „Ég hélt alltaf að þegar sá dagur kæmi að ég missti vinnuna færi ég aftur heim. En ég missti ekki vinnuna. Hún bíður eftir mér." Yfirmaður Jussanam heitir Andrea Ólafsdóttir. Hún hefur aðstoðað Jussanam í baráttu hennar við vinnumálastofnun og Útlendingastofnun. „Við höfum skrifað bréf til lögfræðinga borgarinnar, Útlendingastofnunnar og Vinnumálastofnunnar. Hún hefur unnið í tvö ár fyrir okkur er hefur góða hæfileika í starfið," segir Andrea sem staðfestir að hún hafi gert samning við Jussanam sem hafi síðan verið hafnað af Vinnumálastofnun. „Við fengum meðal annars þau svör að það væri svo mikið atvinnuleysi hér að íbúar Evrópusvæðisins ættu að ganga fyrir," segir Andrea sem þykir stefnan öfugsnúin enda vilji af allra hálfu að hafa Jussanam áfram í vinnu. Andrea segir þetta skrýtið mál auk þess sem það varpi ljósi á veika stöðu erlendra einstaklinga sem skilja við maka sína. Hún segir lögskilnað Jussanam ekki ganga í gegn fyrr en í október, engu að síður séu þessar aðgerðir hafnar. Jussanam hefur áfrýjað málinu til dómsmálaráðuneytis en málið hefur ekki verið tekið fyrir enn sem komið er. Þangað til þarf Jussanam að sitja heima þrátt fyrir viljann til þess að vinna auk þess sem starfið bíður eftir henni. Eins og fyrr segir er Jussanam söngkona. Hér má meðal annars horfa á upptöku af henni í Kastljósinu.
Mest lesið „Þau ákváðu einfaldlega að hann væri minna fatlaður í Garðabæ“ Innlent Segir nýtt að konan sé tekin á beinið Innlent Fimmtán ára piltur ók undan lögreglu um allt höfuðborgarsvæðið Innlent „Þjóðin á ekki fiskinn í sjónum, fiskurinn á sig sjálfur í sjónum“ Innlent Fær um 90 milljónir fyrir verkið sem hópur Eyjamanna vill ekki sjá Innlent Lalli Johns er látinn Innlent Íslendingar handteknir á Spáni með mikið magn fíkniefna Innlent Sakar Rússa um að hafa brennt stærstu verslunarmiðstöð Póllands Erlent Málverk af Grænlandi undir stjórn Trumps vekur athygli Erlent Bandaríkjaforseti vill þiggja lúxusþotu frá Katar að „gjöf“ Erlent Fleiri fréttir Eyjamenn eigi Heimaklett og engin innistæða fyrir kröfum ríkisins Óttast að lítið þurfi til svo bíllinn springi í loft upp Ógnaði ungmennum með hníf Karl Wernersson ákærður fyrir að leyna verðmætum listaverkum fyrir skiptastjóra Martraðakennd leigubílaferð og óvelkomin sána Þorbjörg um sérstakan saksóknara: „Gerum þennan tíma upp“ Hrærður yfir áhuga stjórnarandstöðunnar en hafði annað að gera Fær um 90 milljónir fyrir verkið sem hópur Eyjamanna vill ekki sjá Fimmtán ára piltur ók undan lögreglu um allt höfuðborgarsvæðið Reyna enn einu sinni að ræða framtíð MÍR á aðalfundi Leggja til róttækar breytingar á byggingaeftirliti Á von á veiðigjaldamálinu í sína nefnd og þingstörfum fram í júlí Segir nýtt að konan sé tekin á beinið „Ofgnótt af vannýttum stæðum“ Veiðigjöldin afgreidd í nefnd og njósnarar buðu Sjóvá þjónustu sína Bein útsending: Aðgerðir til að bregðast við rakaskemmdum og öðrum byggingagöllum Mikil hætta meðan maður reyndi að flýja lögreglu í miðbænum „Þjóðin á ekki fiskinn í sjónum, fiskurinn á sig sjálfur í sjónum“ Langflestir telja stríð og átök það sem helst þjakar heiminn „Þau ákváðu einfaldlega að hann væri minna fatlaður í Garðabæ“ Kölluð út vegna viðskiptavinar með æsing Íslendingar handteknir á Spáni með mikið magn fíkniefna Lalli Johns er látinn Afnám virðisaukaskatts geti skilað björgunarsveitum fúlgum fjár Ein staða fornleifafræðings eftir á Þjóðminjasafninu Sker upp herör gegn kínverskum netrisum Aðgerðir gegn Temu og Shein, hraðbanki í hættu og þreyttir hlaupagarpar í beinni „Eiga sína síðustu daga í faðmi ástvina undir hamraslætti og múrborum“ Mótorhjólasamtök aðstoða börn sem hafa orðið fyrir ofbeldi Hækka þurfi veiðigjald í skrefum Sjá meira