Innlent

Dópaður unglingur með veiðihníf handtekinn fyrir eignaspjöll

Uppúr miðnætti síðastliðinn laugardag sást til sex unglinga skemma girðingu við Sigtún á Selfossi.

Lögreglumenn fundu unglingana sem voru á aldrinum 15 til 16 ára skömmu síðar.

Einn þeirra kastaði frá sér veiðihnífi þegar hann varð þess var að lögreglan ætlaði að handtaka hann.

Sá reyndist vera undir fíkniefnaáhrifum. Foreldrar unglingana voru kallaðir á lögreglustöðina til að sækja börn sín í kjölfarið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×