Mál verði höfðað gegn Bretum Magnús Már Guðmundsson skrifar 18. nóvember 2010 17:24 Gunnar Bragi Sveinsson. 14 þingmenn Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Hreyfingarinnar vilja höfða mál gegn Bretum. Mynd/Stefán Karlsson
Fjórtán þingmenn þriggja flokka hafa lagt fram tillögu til þingsályktunar um málshöfðun á hendur breska ríkinu fyrir alþjóðlegum dómstól fyrir að beita hryðjuverkalögum gegn íslenska ríkinu og íslenskum fyrirtækjum í október 2008. Þingmennirnir vilja að gerð verði krafa um skaðabætur. Hinn 8. október 2008 beittu bresk stjórnvöld lögum um varnir gegn hryðjuverkum gegn Landsbanka Íslands, frystu eignir bankans og settu þar með Ísland á lista yfir hættulegustu samtök og menn heimsins. „Með þeim aðgerðum skilgreindu bresk stjórnvöld Ísland og Íslendinga sem hryðjuverkamenn," segir í greinargerð með tillögunni. Liam Fox, varnarmálaráðherra Breta, bað Íslendinga nýverið afsökunar á að fyrri ríkisstjórn hefði beitt þjóðina hryðjuverkalögum í bankahruninu. Svívirðileg framkoma Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, er fyrsti flutningsmaður tillögunnar. Meðflutningsmenn eru Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Birkir Jón Jónsson, Eygló Harðardóttir, Siv Friðleifsdóttir, Vigdís Hauksdóttir, Sigurður Ingi Jóhannsson, Höskuldur Þórhallsson, Þór Saari, Margrét Tryggvadóttir, Birgitta Jónsdóttir, Pétur H. Blöndal, Sigurður Kári Kristjánsson og Guðlaugur Þór Þórðarson. „Ljóst má vera að beint og óbeint tjón íslensks atvinnulífs varð gríðarlegt og dýpkaði þannig þá efnahagslegu kreppu sem skollin var á. Margt bendir því til þess að fjárhagslegt tjón íslensku þjóðarinnar og íslenskra fyrirtækja vegna aðgerða bresku ríkisstjórnarinnar sé mikið. Því er eðlilegt að bresk stjórnvöld axli ábyrgð á því tjóni sem ákvörðun þeirra olli og greiði skaðabætur, enda um ólöglega og svívirðilega framkomu að ræða," segir í greinargerðinni.
Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Fleiri fréttir Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Sjá meira