Stal fimm rándýrum úlpum 23. nóvember 2010 06:00 Úlpuþjófurinn náðist á öryggismyndavél.
Fimm rándýrum úlpum var stolið frá skólabörnum í Valhúsaskóla í gærmorgun. Stúlka náðist á mynd í öryggismyndavél, þar sem hún var að skoða úlpurnar og velja úr þær sem hún síðan tók með sér út. Málið var kært til lögreglu í gær. „Þetta gerðist allt mjög hratt og ég held að enginn sé óhultur. Við erum bara óheppin,“ segir Guðlaug Sturlaugsdóttir, skólastjóri í Valhúsaskóla. Úlpurnar sem stolið var voru frá 66°Norður og slíkar flíkur kosta allt að sjötíu þúsund krónum. „Það eru læstir skápar í skólanum, sem öll börnin geta notað. Við munum svo sannarlega bregðast við þessu,“ segir Guðlaug um viðbrögð skólans við þjófnaðinum. „Vitaskuld er það ansi hart að þurfa að gera ráð fyrir að svona lagað geti komið fyrir. En við verðum að horfast í augu við það.“ Guðlaug segir að einungis úlpur stúlkna hafi verið teknar. Stúlkan sem náðist á mynd hafi sést koma þrisvar inn í fatahengið þegar enginn hafi verið á svæðinu. Svo sýndist sem hún hefði kannað hvort úlpurnar væru merktar áður en hún tók þær. „Við viljum brýna fyrir foreldrum barnanna að merkja úlpurnar þeirra almennilega,“ segir Guðlaug og bætir við að merkingarnar þurfi að vera óafmáanlegar.- jss
Mest lesið Spyr hvort ekki sé tími á að Palestínumenn snúi aftur í friðinn heima Innlent Hátt í sjötíu ár síðan það snjóaði eins lítið Innlent Hvort myndu þau hringja fyrst til baka í Pétur eða Hildi? Innlent Fundu fjarlægustu vetrarbrautina hingað til Erlent Segir útsendara „mögulega“ ekki hafa fylgt verkreglum Erlent Erlendir aðilar reyni að hafa vit fyrir Íslendingum Innlent 28 prósent Selfyssingar: „Eitthvað í mjólkinni eða smjörinu“ Innlent Hljóp inn í brennandi byggingu til að bjarga nágrannanum Innlent Segir Trump ekki reiðan Íslandi Erlent Dómsdagsklukkan færð fram Erlent Fleiri fréttir Hljóp inn í brennandi byggingu til að bjarga nágrannanum Hátt í sjötíu ár síðan það snjóaði eins lítið Spyr hvort ekki sé tími á að Palestínumenn snúi aftur í friðinn heima Hvort myndu þau hringja fyrst til baka í Pétur eða Hildi? 28 prósent Selfyssingar: „Eitthvað í mjólkinni eða smjörinu“ Erlendir aðilar reyni að hafa vit fyrir Íslendingum Óttast að útlendingafrumvarpið þjóni ekki tilgangi sínum Sigurvíma, hópuppsögn og auðar brekkur Boðuð í þingsal á versta tíma: „Brynjar, þú ert nú meiri gaurinn!“ Elísabet tekur tímabundið við embætti landlæknis Ákærður fyrir að taka son sinn hálstaki Metaðsókn í starfsendurhæfingu Óvissa um framboð bæði Írisar og listans Konan enn þungt haldin Leiðir samningaviðræðurnar við bændur Helgi Bjartur einnig ákærður fyrir vændiskaup Hættu að fá boð á vísindaráðsfundi almannavarna: „Menning þöggunar og útilokunar“ „Tel nægja að menn séu að fremja ítrekuð afbrot“ Ólga meðal eldfjallafræðinga og bruni á Húsavík Fjármál barnanna geti haft áhrif á eftirlaun foreldranna Áfengi efnafræðilega skylt lampaolíu, terpentínu og bensíni Karlarnir leiða að ósk kvennanna Þessi skipa lista Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ Nær altjón í iðnaðarhúsnæði eftir bruna á Húsavík Guðrún svarar fyrir gömul ummæli um aðildarviðræður að ESB Afneitun helfararinnar verði gerð refsiverð og fræðsla aukin Rúmlega tvöhundruð skjálftar við Lambafell í Þrengslum Höfðu afskipti af „trylltum“ manni og ofurölvi útlendingi Kvaddi hundinn sem bjargaði lífi hennar uppi í rúmi Þrír eldar á sama tíma á höfuðborgarsvæðinu Sjá meira