Gillz býður rithöfundum í Burn-partí 8. desember 2010 11:00 Egill Einarsson er orðinn meðlimur í Rithöfundasambandinu og ætlar að taka til þar. „
Ég hef aldrei verið jafn ánægður á ævinni,“ segir Egill „Gillzenegger“ Einarsson rithöfundur. Í gær lauk þriggja mánaða bið hjá Agli þegar honum var tilkynnt að umsókn hans um inngöngu í Rithöfundasamband Íslands hefði verið samþykkt. Fréttablaðið sagði frá umsókn Egils í september en hún vakti nokkurt umtal. Rithöfundurinn segist hlakka til starfsins í sambandinu og ætlar þegar að taka til hendinni. „Það eru nokkur markmið sem ég hef sett mér. Ég ætla að kjöta Sjón upp, ætli ég sendi honum ekki SMS strax á eftir, ég ætla að rífa hattinn af Hallgrími Helga, það þarf einhver að segja honum að hattar voru töff árið 2005. Og svo er aðalmarkmiðið að koma meðal fituprósentunni hjá meðlimum Rithöfundasambandsins niður í 25 prósent.“ Þó Egill sé hæstánægður með inngönguna ber þó einn skugga á starfið fram undan. „Um leið og ég fékk góðu fréttirnar renndi ég yfir meðlimi í Rithöfundasambandinu og það eru nokkrir sem eiga ekkert að vera þarna. Til dæmis Hávar Sigurjónsson, ég veit ekki til þess að hann hafi gefið út bók. Ég neyðist til að tilkynna honum á morgun [í dag] að hann sé ekki lengur meðlimur.“ Rithöfundurinn áformar mikil veisluhöld til að fagna þessum áfanga. Hann er að íhuga að halda áramótapartí á heimili sínu fyrir félaga sína í Rithöfundasambandinu en tekur þó forskot á sæluna. „Fyrsta partíið verður um helgina. Það verður Burn-partí á Austur, Burn-skvísur að afgreiða drykki og allur pakkinn. Auðvitað er öllum meðlimum sambandsins boðið.“- hdm
Mest lesið Gerði leigusamning við krabbameinið Lífið „Ég er pottþétt ekki á leiðinni til Íslands“ Lífið Tæplega 28 þúsund í mat á mánuði: „Hvar voru þið að svindla?“ Lífið Fréttatía vikunnar: Framsókn, Epstein-skjölin og Dagur Sig Lífið Sjö dýrustu eignirnar sem seldust árið 2025 Lífið Hitnar í kolunum hjá Heated Rivalry-stjörnum? Lífið Gummi Emil á leið í fæðubótarefnin Lífið Alma stolt af syninum Lífið Drengurinn sem dó Lífið Vill 700 milljónir fyrir höllina Lífið Fleiri fréttir Söngvari 3 Doors Down látinn „Ég er pottþétt ekki á leiðinni til Íslands“ Alma stolt af syninum Hitnar í kolunum hjá Heated Rivalry-stjörnum? Gerði leigusamning við krabbameinið Fréttatía vikunnar: Framsókn, Epstein-skjölin og Dagur Sig Tæplega 28 þúsund í mat á mánuði: „Hvar voru þið að svindla?“ Karlmennskan rís úr öskunni Sjö dýrustu eignirnar sem seldust árið 2025 Alan Carr á Íslandi „Ungir drengir eru búnir að láta segja sér að þeir séu eitraðir“ Gummi Emil á leið í fæðubótarefnin Fannar og Vala keyptu fyrir 170 milljónir í Kjalarlandi Hefur verið 73 kíló í 55 ár en bætti aðeins á sig þegar bjórinn var leyfður Viðar Örn hefur störf á Sólheimum Geoff og Ásta Margrét nýtt par Prinsinn og prinsessan ætla að flytja heim á næsta ári Vill 700 milljónir fyrir höllina Drengurinn sem dó Nakinn á kóræfingu Laufey fékk sæta kveðju frá yngsta Grammy-verðlaunahafa sögunnar „Skýið er bleikt og við erum sannarlega enn þá á því skýi og í sjokki“ Síðasti leynigesturinn opinberaður „Hvernig ég er að gera þetta núna er ekki hægt til lengri tíma“ Tók Indriða í pontu og uppskar hláturskast í þingsal X-ið bætir við sig Bolla Vaskir Valsmenn hressir á Hlíðarenda „Þetta er bara fjárhagslegt ofbeldi“ „Ekki er þetta uppáhaldslagið þitt?“ Forsetinn hótar lögsókn: „Vertu viðbúinn Noah“ Sjá meira