Kvikan að færast í átt að Kötlu? 9. apríl 2010 19:50 Mynd/ Anton.
Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur veltir upp þeim möguleika í grein á heimasíðu sinni að kvikan undir Eyjafjallajökli sé að færast til austurs í átt að Kötlu. Hann bendir á að jarðskjálftar hafi verið að færast undanfarna tvo daga í átt að Goðabungu í Mýrdalsjökli. Haraldur segir í grein sinni á http://vulkan.blog.is/blog/vulkan/:"Undanfarna tvo daga hefur órói á mælum Veðurstofunnar í grennd við Fimmvörðuháls verið jafn en ef til vill í minna lagi. Hins vegar er það athyglisvert að á þessum tíma hafa jarðskjálftar legið mjög grunnt, flestir innan við 2 km dýpi, og þeir hafa verið að læðast austur á bóginn í áttina að Goðabungu. Það má sjá á meðfylgjandi korti Veðurstofunnar. Gæði staðsetninga á skjálftunum eru ágæt, samkvæmt upplýsingum Veðurstofu. Er þetta hugsanlega kvikuinnskot út frá jólatrénu af kvikufleygum sem nú eru undir Eyjafjallajökli, í áttina að Kötlu? Það er einnig mjög athyglisvert að fornir móbergshryggir og goshryggir á Fimmvörðuhálsi liggja í austur-vestur stefnu. Þetta virðist hafa verið yfirgnæfandi stefna á tektóník eða jarðskorpuhreyfingum." Fyrr í dag kom fram að tveir jarðskjálftar urðu í Goðabungu í vestanverðum Mýrdalsjökli, sá fyrri varð laust fyrir klukkan tvö í nótt og sá síðari um hálfsjöleytið í morgun, og voru þeir báðir um 2,5 stig. Skjálftar hafa verið algengir í Goðabungu á haustin og segir Einar Kjartanssson, jarðeðlisfræðingur á Veðurstofu, óvanalegt að sjá þá á þessum árstíma á þessum stað. Grannt er fylgst með þróun mála, en Goðabunga er ekki talin vera hluti af eldstöðinni Kötlu, og vill Einar fremur rekja skjálftana í Goðabungu til jarðhita.
Mest lesið Lögregla rannsakar alvarlegt slys í Lágafellslaug Innlent Krefjast bóta verði ekki fallið frá áformum um skólaþorp Innlent Sex vikið úr starfi vegna banatilræðis gegn Trump Erlent Vaktin: „Kjarnorkuákvæðinu“ beitt á veiðigjöldin Innlent Tekur önnur Íslendinga þátt í erfiðustu og lengstu kappreið í heimi Innlent Þriðjungur endurreisnarinnar gæti fallið á Rússa Erlent Fundu 36 hugsanlega þolendur mansals á Íslandi í alþjóðlegri lögregluaðgerð Innlent Halda áfram að ræða veiðigjöldin Innlent Draga Dettifoss til Reykjavíkur Innlent Fyrsta rafknúna flugvélin í dönsku innanlandsflugi Erlent Fleiri fréttir Vaktin: „Kjarnorkuákvæðinu“ beitt á veiðigjöldin Fundu 36 hugsanlega þolendur mansals á Íslandi í alþjóðlegri lögregluaðgerð „Eftir þetta hvassviðri í þinginu í gær heldur lífið áfram“ Tekjur af laxveiði í Borgarfirði eru vel yfir 50% af tekjum landbúnaðar á svæðinu Krefjast bóta verði ekki fallið frá áformum um skólaþorp Halda áfram að ræða veiðigjöldin Tekur önnur Íslendinga þátt í erfiðustu og lengstu kappreið í heimi Draga Dettifoss til Reykjavíkur Sleginn í andlitið með hnúajárni Lögregla rannsakar alvarlegt slys í Lágafellslaug Þingfundi frestað: Stjórnarandstaðan lagði fram „aðeins mýkri“ tillögu „Það er þarna sem rússneskir kafbátar fara í gegn“ Hélt á lokuðu umslagi Tillögur „ekki afhentar í lokuðu umslagi“ Uppþot og fúkyrði á þinginu og bandarískur kjarnorkukafbátur Jökulhlaupið í rénun Reyna að stilla til friðar í bakherbergjum Alþingis Segir ummæli ráðherra um sig ógeðfelld Fundu tuttugu kíló af grasi eftir húsleit í Hafnarfirði Mennirnir þrír sjáist ekki í myndefni Vara við slysahættu vegna kaldavatnsleysis Vilja herða reglur um frágang rafhlaupahjóla í Reykjavík Segir valkyrjur rangnefni og vill kalla þær skjaldmeyjar Samtal við stjórnarandstöðuna fullreynt Kemur kjarnorkuvetur á eftir kjarnorkuákvæðinu? „Forsætisráðherra veit ekkert hvernig þetta hefur verið!“ „Enginn vafi á að fyrirkomulag Bílastæðasjóðs er löglegt“ Nóróveira líkleg orsök hópsýkingar á Laugarvatni „Það er orrustan um Ísland“ „Alvarleg yfirlýsing frá formanni flokks“ Sjá meira