Fleiri aka yfir á rauðu ljósi 16. september 2010 09:28
Færri voru teknir fyrir ölvun við akstur í ágústmánuði en á sama tíma í fyrra og nemur munurinn 29 prósentum. Líkamsárásum fækkaði um 29%, fíkniefnabrotum um 11% og eignaspjöllum um 2%. Þetta kemur fram í afbrotatölfræði Ríkislögreglustjóra fyrir ágúst 2010. Til samanburðar er þar miðað við breytingu frá sama mánuði árið á undan. Áfengislagabrotum fjölgaði í ágústmánuði um 25%, akstri gegn rauðu ljósi um 33% og nytjastuldum um 3%. Hegningarlagabrotum hefur fækkað á milli ára og voru þau 1.248 í ár en 1.428 á liðnu ári. Umferðarlagabrotin voru 5.296 en fóru yfir 6 þúsund árin 2007 og 2008. Fíkniefnabrot voru 106 og hefur fækkað jafnt og þétt frá árinu 2006. Hraðakstursbrot voru 4.268 en þeim fækkaði um 5% milli ára. Innbrotum fækkaði um 23% en þjófnuðum fjölgaði lítillega, eða um 3%. Í haust verður gefin út afbrotatölfræði ríkislöglreglustjóra fyrir árið 2009. Þar kemur meðal annars fram að heildarfjöldi brota er nokkuð svipaður milli ára. Hegningarlagabrotum hefur þó fjölgað nokkuð. Á árinu 2009 voru þau 15.966 en 14.578 árið 2008. Þessa aukningu má að mestu rekja til fjölgunar auðgunarbrota en innan þeirra falla meðal annars innbrot og þjófnaðir. Hraðakstursbrot eru 78% allra umferðarlagabrota. Þau voru 43.000 á síðasta ári og hafa aldrei verið fleiri.
Mest lesið Segir vonbrigðin með prinsessuna rista djúpt Erlent Tveir handteknir í tengslum við andlát í Vestmannaeyjum Innlent Þriðjungi finnst erfitt að fylgjast með fréttum Innlent „Þá kemur bara allt í einu högg“ Innlent Ekkert óvenjulegt við kalt og bjart veður Veður Óvæntur stórsigur í Texas hringir bjöllum hjá Repúblikönum Erlent Fjölskyldunni vísað til Rússlands en örlög föðurins óljós Innlent Lögregla fékk send myndbönd af árásinni frá vegfarendum Innlent Varpa loksins ljósi á umdeilt samkomulag Epsteins frá 2008 Erlent Kári Stefánsson fordæmir vinnubrögð Moggans Innlent Fleiri fréttir Þriðjungi finnst erfitt að fylgjast með fréttum Segir loðnuna allsstaðar kveikja vertíðarstemningu „Þá kemur bara allt í einu högg“ Tveir handteknir í tengslum við andlát í Vestmannaeyjum Gagnrýnir stjórnvöld um sinnuleysi vegna fæðuöryggis þjóðarinnar Brottvísanir verði beittasta vopnið Fjölskyldunni vísað til Rússlands en örlög föðurins óljós Fækka sýslumönnum í einn Óttaðist um líf sitt þegar árásin stóð sem hæst Loka framleiðslueldhúsi vegna listeríu Eygló landpóstur greiðir 45 þúsund krónum meira: „Er ekki venjulegt fólk á landsbyggðinni?“ Einum Bifrastarkennaranna sagt upp fyrir ótengdar sakir Vilja ekki óundirbúnar fyrirspurnir í borgarstjórn Kári Stefánsson fordæmir vinnubrögð Moggans Vilja kengbeygja kvenfélagið og krefjast Ketiláss alls Skýr skilaboð um að það borgi sig ekki að leita til Íslands Lögregla fékk send myndbönd af árásinni frá vegfarendum Boðar aðgerðir gegn brotastarfsemi Samstillt þingnefnd vill taka ESB út úr orðalagi nýrrar stefnu Um 125 börn á þyngdarstjórnunarlyfjum og 500 með fitulifur Gagnagrunnur heimilisfanga ICE-liða hýstur á Íslandi Dyravörður tók gest kverkataki Geta stórbætt þjónustu fyrir þau sem greinast með krabbamein Segir af sér þingmennsku að ákveðnu skilyrði uppfylltu Sáttamiðlun úrræði sem væri alls ekki fyrir alla þolendur Spennt að mæta fyrrverandi yfirmanni í kappræðum Líkurnar á lækkun „mjög litlar“ Mótmæla og biðla til utanríkisráðherra Nýir oddvitar og sáttameðferð í kynferðisbrotamálum Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Sjá meira