Forstjóri OR og faðir stjórnarformanns fengu umdeildar verktakagreiðslur 19. ágúst 2010 19:57 Faðir Haralds Flosa Tryggvasonar þáði umdeildar verktakagreiðslur ásamt nýráðnum forstjóra Orkuveitunnar.
Faðir Haralds Flosa Tryggvasonar, stjórnarformanns Orkuveitu Reykjavíkur (OR), og nýráðinn forstjóri Orkuveitunnar, Dr. Helgi Þór Ingason, sátu saman í stjórn eignarhaldsfélagsins Nordica ráðgjöf. Haraldur Flosi var spurður um þessi tengsl í Kastljósi í kvöld en þá sagði hann að faðir sinn og Helgi hefðu rekið námskeið saman fyrir um fimmtán árum síðan. Félagið komst í fréttirnar í febrúar á þessu ári þegar Ríkisendurskoðun gagnrýndi Háskóla Íslands (HÍ) harðlega fyrir óvanalega háar verktakagreiðslur til nokkurra eignarhaldsfélaga sem starfsmenn skólans sátu í. Félagið sem hlaut hæstu greiðsluna, eða 16 milljónir, var fyrrnefnt eignarhaldsfélag - Nordica ráðgjöf. Verktakagreiðslurnar voru fyrir störf hjá Endurmenntunnarstofnun HÍ. Í stjórn félagsins sátu Helgi Þór, sem er nýráðinn forstjóri Orkuveitunnar, ásamt þeim Hauki Inga Jónssyni dósent og Tryggva Sigurbjarnasyni, sem er faðir Haralds Flosa. Ríkisendurskoðun spurði Háskóla Íslands afhverju fyrrgreindir starfsmenn HÍ væru verktakar en ekki venjulegir launamenn í þessum verkefnum. Í svari HÍ kom meðal annars fram að kennsla við Endurmenntunnarstofnunin væri ekki hluti af starfsskyldum fastra kennara við kennslu, rannsóknir og stjórnun. Námið færi almennt fram utan hefðbundins vinnutíma, það er, á kvöldin og um helgar og sinni kennararnir því í aukavinnu. Haraldur Flosi var hinsvegar spurður í kvöld í Kastljósi um tengsl hans við Helga Þór. Þá svaraði hann því að faðir hans og Helgi Þór hefðu rekið námskeið saman fyrir um fimmtán árum síðan. Haraldur áréttaði að Helgi Þór hefði þá reynslu og þekkingu sem stjórn Orkuveitunnar teldi æskilega fyrir starfið. Að auki taldi stjórnin að Helgi væri óumdeildur.
Tengdar fréttir Dósent með 6 milljónir í verktakagreiðslur hjá HÍ Helgi Þór Ingason dósent við Háskóla Íslands (HÍ) fékk rúmlega 6 milljónir greiddar í verktakagreiðslur frá Háskóla Íslands á síðasta ári. Hann var jafnframt í fullu starfi hjá skólanum á sama tímabili. Verktakagreiðslurnar voru hinsvegar fyrir störf hjá Endurmenntunnarstofnun HÍ. 15. febrúar 2010 11:16 Mest lesið Saka meirihlutann um að slá ryki í augu borgarbúa: Krefjast svara um tilhögun upplýsingagjafar Innlent Bæjarstjóri í þriðja skipti Innlent Blóðug föt á vettvangi þar sem lögreglan var með viðbragð Innlent Akreinum fækki þó bílum fjölgi: Flöskuhálsinn ekki endilega fjöldi akreina Innlent Trump sparkar í bandamenn í aðdraganda Nató-fundar í Ankara Erlent Kominn á sjúkrahús eftir krefjandi ferð Innlent Staðfesta hnífstunguárás: Gerandinn handtekinn Fréttir Sambandið stormasamt og lítið útlit fyrir að gjáin sé að minnka Innlent Hús bleikjuvinnslu varð að Syndabæli Innlent Fyrrum Ólympíufari ákærður fyrir að skemma laugina við Lincoln-minnismerkið Erlent Fleiri fréttir Alexandra ráðin bæjarstjóri Suðurnesjabæjar Hafna tillögum um þéttingu í Grafarvogi Bæjarstjóri í þriðja skipti Saka meirihlutann um að slá ryki í augu borgarbúa: Krefjast svara um tilhögun upplýsingagjafar Akreinum fækki þó bílum fjölgi: Flöskuhálsinn ekki endilega fjöldi akreina Hús bleikjuvinnslu varð að Syndabæli Kominn á sjúkrahús eftir krefjandi ferð Blóðug föt á vettvangi þar sem lögreglan var með viðbragð Sambandið stormasamt og lítið útlit fyrir að gjáin sé að minnka Krefjandi sjúkraflug milli Íslands og Grænlands Ráðherra undir þrýstingi, eldsneytismarkaðurinn til skoðunar og pottum lokað Ekki í fyrsta sinn sem brugðið er á leik með liminn Vill að ríkið taki við sölu vímuefna Fimm heitum pottum lokað í Laugardalslaug Heilsustofnunin í Hveragerði fær langtímasamning Heimsótti bráðamóttökuna 292 sinnum á fimm árum Reyndist ekki vera hópuppsögn Frumniðurstöður kalli á dýpri umræðu um verðlagningu olíufélaganna Tugir vilja feta í fótspor Fannars Vasaþjófar sem herja á ferðamenn engir amatörar Villti á sér heimildir sem eftirlitsmaður Ekki hægt að fullyrða að bensínlækkunin hafi skilað sér Ein hópuppsögn í júní Koma eigi í veg fyrir skólaforðun barna með samræmdum viðbrögðum Flúði á Hopp-deilibíl eftir innbrot og ók yfir göngubrú Agnes var meira en bara morðingi Saka ríkisstjórnina um svik Nemendum mismunað með ósamræmi einkunna Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Sjá meira
Dósent með 6 milljónir í verktakagreiðslur hjá HÍ Helgi Þór Ingason dósent við Háskóla Íslands (HÍ) fékk rúmlega 6 milljónir greiddar í verktakagreiðslur frá Háskóla Íslands á síðasta ári. Hann var jafnframt í fullu starfi hjá skólanum á sama tímabili. Verktakagreiðslurnar voru hinsvegar fyrir störf hjá Endurmenntunnarstofnun HÍ. 15. febrúar 2010 11:16
Saka meirihlutann um að slá ryki í augu borgarbúa: Krefjast svara um tilhögun upplýsingagjafar Innlent
Saka meirihlutann um að slá ryki í augu borgarbúa: Krefjast svara um tilhögun upplýsingagjafar Innlent