Innlent

Vill ekkert segja fyrr en að lestri loknum

Jón Bjarnason hefur ekki kynnt sér skýrsluna í heild né vinnugögn nefndarinnar. Tjáir sig því ekki að svo stöddu.fréttablaðið/anton
Jón Bjarnason hefur ekki kynnt sér skýrsluna í heild né vinnugögn nefndarinnar. Tjáir sig því ekki að svo stöddu.fréttablaðið/anton
Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra vill ekkert tjá sig um einstök efnisatriði nýútkominnar skýrslu starfshóps um endurskoðun fiskveiðistjórnunarkerfisins. Í viðtali Fréttablaðsins við ráðherra kom ekki fram hvenær hann telur ástæðu til að tjá sig þar sem hann hefur ekki kynnt sér skýrsluna til hlítar.

Jón skipaði starfshópinn í júlí 2009 til að endurskoða fiskveiðistjórnunarkerfið, með vísan til stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnar Samfylkingar og VG um endurskoðun laga um stjórn fiskveiða. Verkefnið var að skilgreina helstu álitaefni sem fyrir hendi eru og setja fram valkosti sem líklegir væru til að sem víðtækust sátt náist um fiskveiðistjórnunina meðal þjóðarinnar.

Jón segist ánægður með að hópurinn hafi skilað af sér. Hins vegar hafi hann ekki náð að fara í gegnum alla þætti skýrslunnar. „Hún verður í framhaldinu tekin til skoðunar og framhaldsvinnu í ráðuneytinu,“ segir ráðherra.

Starfshópurinn mælir eindregið með að farin verði svokölluð samningaleið. Er það túlkun fulltrúa innan nefndarinnar og hagsmunaaðila að það útiloki fyrningarleiðina en í stjórnarsáttmála Samfylkingarinnar og VG frá í maí 2009 stendur: „Lög um stjórn fiskveiða verði endurskoðuð í heild með það að markmiði að skapa sátt meðal þjóðarinnar um eignarhald og nýtingu auðlinda sjávar og leggja grunn að innköllun og endurráðstöfun aflaheimilda á tuttugu ára tímabili í samræmi við stefnu beggja flokka.“

Fréttablaðinu lék forvitni á að vita hvort Jón túlki niðurstöðu starfshópsins með sama hætti. Eins hvort hann sjái samningaleiðina sem kost. Þessum spurningum svaraði ráðherra með eftirfarandi hætti: „Ég mun láta fara yfir alla kosti og segi ekki meira að svo stöddu.“

svavar@frettabladid.is



Fleiri fréttir

Sjá meira


×