Innlent

Verkfall vélstjóra: Ákvörðun samninganefndar mótmælt

Félag Vélstjóra- og málmtæknimanna mótmælir ákvörðun samninganefndar ríkisins um að skip á vegum Hafrannsóknastofnunar fái að ljúka fyrirfram skipulögðum leiðangri sínum áður en til verkfalls vélstjóra kemur. Vélstjórar á skipum stofnunarinnar samþykktu þann 25. ágúst s.l. að boða til vinnustöðvunar sem hæfist á miðnætti föstudaginn 10. september.

„Nú þegar styttist í að verkfallið hefjist, ákveður Samninganefnd ríkisins einhliða að skip, sem er statt fjarri heimahöfn, megi ljúka fyrirfram skipulögðum leiðangri og að verkfall hefjist í raun ekki fyrr en skipið kemur til hafnar," segir í tilkynningu frá félaginu. Að mati þeirra fær þessi stúlkun ekki staðist „því samkvæmt henni er atvinnurekanda ekki skylt að virða upphafstíma löglega boðaðrar vinnustöðvunar. En eðli málsins samkvæmt hlýtur vinnuskylda ætíð að falla niður þegar vinnustöðvun hefst, hvorki fyrr né síðar."

Þá segir ennfremur að áhafnir rannsóknarskipanna hafi upplifað það að þegar rannsóknarmenn, sem starfa um borð í skipunum og einnig eru opinberir starfsmenn, fari í verkfall þyki sjálfsagt að skipin verði í höfn áður en verkfall hefst. „En nú þegar hefðbundin sjómannastétt boðar vinnustöðvun er allt kapp lagt á að halda skipunum úti og láta mennina vinna eftir að þeir eru komnir í verkfall."

Kjarasamningur vegna starfa vélstjóra á skipum Hafrannsóknarstofnunar rann út í mars 2009 og segir félagið að í samningaviðræðum hafi viðsemjendur félagsins ekki verið til viðræðu um leiðréttingu á því sem þeir kalla mjög lág grunnlaun vélstjóra á skipum stofnunarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×