Meintum klíkumálum Jóns Ásgeirs vísað til sérstaks saksóknara 12. maí 2010 12:21 Jón Ásgeir Jóhannesson. Málum hans og klíkufélaga, eins og það er orðað í stefnu, hefur verið vísað til sérstaks saksóknara.
Meint brot Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, og klíku hans, eins og það er orðað í stefnu slitastjórnar Glitnis, hefur verið tilkynnt til embætti sérstaks saksóknara. Um er að ræða meint lögbrot en stefnan er gríðarlega harðorð í garð Jóns Ásgeirs, Pálma Haraldssonar, Lárusar Weldings, Þorsteins M. Jónssonar og Ingibjargar Pálmadóttur, eiginkonu Jóns Ásgeirs. Þá hefur PricewaterhouseCoopers einnig verið stefnt. Slitastjórnin krefst 260 milljarða í skaðabætur fyrir umgengni fimmmenninganna gagnvart bankanum. Pálmi sendi frá sér yfirlýsingu í morgun sem lögmaðurinn Sigurður G. Guðjónsson ritaði. Þar var því hótað að formanni slitastjórnar Glitnis yrði stefnt persónulega verði stefna gegn Pálma ekki dregin til baka fyrir klukkan hálf þrjú í dag. Þá sagði Jón Ásgeir í viðtali við Pressuna.is að stefnan væri „slúðurstefna". Hann sagði, líkt og Pálmi, að formaður slitastjórnar ætti ekki von á góðu: „Steinunn [Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar] getur átt yfir höfði sér tíu ára fangelsi fyrir að misnota bandaríska dómstóla með þessum hætti," sagði Jón Ásgeir í viðtali við Pressuna. Ekki hefur náðst í Jón Ásgeir þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Þá hefur ekki heldur náðst PricewaterhouseCoopers, sem hefur einnig verið stefnt fyrir að vera meðsekt í málinu. Ennfremur hefur ekki náðst í Sigurð B. Arnþórsson, starfsmann endurskoðendafyrirtækisins en hann er jafnframt framkvæmdastjóri Félags löggiltra endurskoðenda á Íslandi.
Tengdar fréttir Glitnir hélt upplýsingum leyndum fyrir FME Stjórn Glitnis hélt mikilvægum upplýsingum leyndum fyrir Fjármálaeftirlitinu (FME) árið 2007. Um er að ræða upplýsingar um lánveitingar bankans til Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og tengdra aðila. Þessi lán voru langt umfram lög og reglur um hve hátt hlutfall þessi lán máttu vera sem hlutfall af eigin fé Glitnis. 12. maí 2010 09:23 Pálmi Haralds: Vanþekking slitastjórnar Glitnis með ólíkindum „Málssókn þessi er tilhæfulaus með öllu og gerð í þeim augljósa tilgangi að setja stefndu í þá stöðu að geta ekki varið sig," segir athafnamaðurinn Pálmi Haraldsson í yfirlýsingu vegna ákvörðunar slitastjórnar Glitnis að höfða mál á hendur honum og fleiri aðilum fyrir dómstól í Bandaríkjunum. Pálmi segir að málssóknin gegn sér sé augljóslega byggð á misskilningi og vanþekkingu slitastjórnarinnar á því hverjir sátu í stjórn Glitnis. Sú staðreynd eins og sér sé með ólíkindum. 12. maí 2010 10:51 Bandarískir fjárfestar blekktir með sviksamlegum hætti „Til að fjármagna þessar greiðslur út úr bankanum hafi stefndu mjög stuðst við það fé sem Glitnir aflaði í Bandaríkjunum á árinu 2007, sér í lagi með sölu á skuldabréfum fyrir einn milljarð dala til fjárfesta í New York og víðar í Bandaríkjunum í september það ár. Þegar sú sala stóð yfir voru bandarískir fjárfestar blekktir með sviksamlegum hætti varðandi þá miklu áhættu sem Glitnir hafði tekið gagnvart Jóni Ásgeiri ásamt fyrirtækjum og einstaklingum í tengslum við hann." 12. maí 2010 08:24 Kaupin á TM voru glórulaus fyrir Glitni Í stefnu slitastjórnar Glitnis fyrir dómstóli í New York er fjallað um leikfléttuna í kringum kaupin á Tryggingamiðstöðinni (TM) en þau kaup eru sögð hafa verið glórulaus fyrir Glitni. Á endanum tapaði bankinn tæplega 26 milljörðum kr. á þessum kaupum. 12. maí 2010 11:27 Formaður FLE: „Ef álitin eru röng þá hafa menn ekki staðið sig vel“ „Ég hef ekki náð að kynna mér þessi mál til þess að átta mig almennilega á því hver eðlileg viðbrögð eru,“ segir Þórir Ólafsson, formaður félags löggiltra endurskoðenda (FLE) spurður hvort stjórnin ætli að bregðast við því að framkvæmdarstjóri félagsins, Sigurður B. Arnþórsson, er sérstaklega nefndur í stefnu skilanefndar Glitnis gegn Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og félögum. 12. maí 2010 10:43 Endurskoðendur Glitnis brutu gegn starfsskyldum sínum PricewaterhouseCoopers (PwC) brutu gegn starfsskyldum sínum í störfum fyrir Glitni seinnihluta ársins 2007 að því er segir í stefnu þeirri sem slitastjórn Glitnis hefur lagt fram fyrir dómstóli í New York og birt er á vefsíðu slitastjórnarinnar. 12. maí 2010 10:07 Óskað kyrrsetninga á eignum Jóns Ásgeirs um allan heim Dómstóll í London hefur óskað eftir kyrrsetningu á eignum Jóns Ásgeirs Jóhannessonar hvar sem er í heiminum. Þetta kemur fram í tilkynningu sem slitastjórn Glitnis sendi frá sér í nótt. 12. maí 2010 07:56 Mest lesið Önnur sprunga opnast Innlent Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Erlent Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Erlent Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Innlent Fallegt og ekkert smágos Innlent Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Erlent Handtekin fyrir að stunda kynlíf með munkum og kúga af þeim fé Erlent Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Innlent Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Innlent Eldgosið í heimsmiðlunum: „Ísland: Rýmt“ Innlent Fleiri fréttir Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Landa í Grindavíkurhöfn og botna ekkert í lokunum Mikið eldingaveður á Vestfjörðum Eldgosið í heimsmiðlunum: „Ísland: Rýmt“ Enn eitt gosið hafið og íbúar tala um Groundhog Day Kæmi mér ekki á óvart að þetta væri síðasta Sundhnúkagosið Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Fallegt og ekkert smágos Önnur sprunga opnast Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ „Valda fleiri húðkrabbameinum en sígarettur lungnakrabbameini“ Göngumaður í sjálfheldu við Hestskarð Ákall um ljósabekkjabann og gengið fyrir Ólöfu Töru Enn rís land í Svartsengi Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Hleypti líklega óvart úr Kominn úr lífshættu eftir stunguárás við Mjóddina Gísli Jóns í tveimur útköllum frá miðnætti „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Maðurinn er fundinn Ekki sekur um að hafa valdið dauða manns í Kiðjabergi Fagnar áherslum ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi Sjá meira
Glitnir hélt upplýsingum leyndum fyrir FME Stjórn Glitnis hélt mikilvægum upplýsingum leyndum fyrir Fjármálaeftirlitinu (FME) árið 2007. Um er að ræða upplýsingar um lánveitingar bankans til Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og tengdra aðila. Þessi lán voru langt umfram lög og reglur um hve hátt hlutfall þessi lán máttu vera sem hlutfall af eigin fé Glitnis. 12. maí 2010 09:23
Pálmi Haralds: Vanþekking slitastjórnar Glitnis með ólíkindum „Málssókn þessi er tilhæfulaus með öllu og gerð í þeim augljósa tilgangi að setja stefndu í þá stöðu að geta ekki varið sig," segir athafnamaðurinn Pálmi Haraldsson í yfirlýsingu vegna ákvörðunar slitastjórnar Glitnis að höfða mál á hendur honum og fleiri aðilum fyrir dómstól í Bandaríkjunum. Pálmi segir að málssóknin gegn sér sé augljóslega byggð á misskilningi og vanþekkingu slitastjórnarinnar á því hverjir sátu í stjórn Glitnis. Sú staðreynd eins og sér sé með ólíkindum. 12. maí 2010 10:51
Bandarískir fjárfestar blekktir með sviksamlegum hætti „Til að fjármagna þessar greiðslur út úr bankanum hafi stefndu mjög stuðst við það fé sem Glitnir aflaði í Bandaríkjunum á árinu 2007, sér í lagi með sölu á skuldabréfum fyrir einn milljarð dala til fjárfesta í New York og víðar í Bandaríkjunum í september það ár. Þegar sú sala stóð yfir voru bandarískir fjárfestar blekktir með sviksamlegum hætti varðandi þá miklu áhættu sem Glitnir hafði tekið gagnvart Jóni Ásgeiri ásamt fyrirtækjum og einstaklingum í tengslum við hann." 12. maí 2010 08:24
Kaupin á TM voru glórulaus fyrir Glitni Í stefnu slitastjórnar Glitnis fyrir dómstóli í New York er fjallað um leikfléttuna í kringum kaupin á Tryggingamiðstöðinni (TM) en þau kaup eru sögð hafa verið glórulaus fyrir Glitni. Á endanum tapaði bankinn tæplega 26 milljörðum kr. á þessum kaupum. 12. maí 2010 11:27
Formaður FLE: „Ef álitin eru röng þá hafa menn ekki staðið sig vel“ „Ég hef ekki náð að kynna mér þessi mál til þess að átta mig almennilega á því hver eðlileg viðbrögð eru,“ segir Þórir Ólafsson, formaður félags löggiltra endurskoðenda (FLE) spurður hvort stjórnin ætli að bregðast við því að framkvæmdarstjóri félagsins, Sigurður B. Arnþórsson, er sérstaklega nefndur í stefnu skilanefndar Glitnis gegn Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og félögum. 12. maí 2010 10:43
Endurskoðendur Glitnis brutu gegn starfsskyldum sínum PricewaterhouseCoopers (PwC) brutu gegn starfsskyldum sínum í störfum fyrir Glitni seinnihluta ársins 2007 að því er segir í stefnu þeirri sem slitastjórn Glitnis hefur lagt fram fyrir dómstóli í New York og birt er á vefsíðu slitastjórnarinnar. 12. maí 2010 10:07
Óskað kyrrsetninga á eignum Jóns Ásgeirs um allan heim Dómstóll í London hefur óskað eftir kyrrsetningu á eignum Jóns Ásgeirs Jóhannessonar hvar sem er í heiminum. Þetta kemur fram í tilkynningu sem slitastjórn Glitnis sendi frá sér í nótt. 12. maí 2010 07:56