Innlent

Vildu að Íslandsbanki þvingaði starfsmenn í yfirheyrslur

Sigríður Mogensen skrifar
Lögmaður slitastjórnar Glitnis lagði að stjórnendum Íslandsbanka að grípa til aðgerða vegna starfsmanns bankans sem neitaði að koma í skýrslutöku hjá slitastjórn í tengslum við hundruð milljarða skaðabótamál. Fréttastofa hefur tölvupósta sem staðfesta þetta undir höndum.

Fréttastofa greindi frá því fyrir skömmu að Íslandsbanki hafi tilkynnt Fjármálaeftirlitinu um afskipti slitastjórnarinnar af starfsfólki bankans. Sú stefna hefur verið mörkuð innan Íslandsbanka að hvetja starfsmenn til að taka þátt í hverskyns skýrslutökum og rannsóknum á orsökum á falli Glitnis. Þá leggur bankinn starfsmönnum sem það gera til lögmannsaðstoð allt að 10 klukkustundum. Í bréfi frá yfirlögfræðingi Íslandsbanka til Fjármálaeftirlitsins kemur fram að starfsmönnum sé frjálst að fara að ráðum lögmanns síns við slíkar skýrslutökur án ótta við að það hafi áhrif á starfsframa þeirra hjá Íslandsbanka.

Yfirlögfræðingur Íslandsbanka átti fund með Steinunni Guðbjartsdóttur, formanni slitastjórnar, Árna Tómassyni, formanni skilanefndar og Michael Miller, lögmanni sem starfar fyrir slitastjórnina um þessi mál í byrjun september. Þar setti lögmaður slitastjórnar fram þá ósk að Íslandsbanki breytti stefnu sinni og áskildi sér rétt til að nýta ráðningarsamband sitt við starfsmenn til að þvinga þá til skýrslugjafar þó að hún kunni að ganga gegn ráðum lögmanns starfsmannsins.

Þann 5. september sendi lögmaður slitastjórnar Glitnis yfirlögfræðingi Íslandsbanka síðan bréf þar sem hann greindi frá því að tiltekinn starfsmaður bankans hefði neitað að koma í skýrslutöku vegna einkamálsins í New York og fór þess á leit við stjórnendur Íslandsbanka að þeir hugleiddu til hvaða aðgerða bankinn gæti gripið gagnvart starfsmanninum til þess að fá hann til samstarfs. Afrit af bréfinu var sent stjórnarformanni Íslandsbanka, Friðriki Sophussyni. Í bréfi yfirlögfræðings Íslandsbanka til formanns slitastjórnar segir að Íslandsbanki muni ekki miðað við núverandi stefnu sína leggja að starfsmanninum að koma í skýrslutöku hjá slitastjórn, enda sé það fjarri starfsskyldum hans.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×