Mikil aukning á sortuæxlum rakin til ljósabekkja 9. september 2010 10:12
Talið er sennilegt að mikil aukning á sortuæxlum í húð hér á landi síðustu áratugi stafi einkum af notkun ljósabekkja, en einnig að hluta til af sólarlandaferðum. Um málið er fjallað í septemberhefti tímaritsins American Journal of Epidemiology. Aðalhöfundur greinarinnar er franski faraldsfræðingurinn Philippe Autier, en meðal annarra höfunda eru Íslendingar sem starfa hjá Krabbameinsskránni, Geislavörnum, Landspítalanum og Háskóla Íslands. Í tilkynningu frá Krabbameinsfélaginu segir að fram undir 1990 hafi Íslendingar verið með lægstu tíðni sortuæxla í húð á Norðurlöndum en á síðustu árum hafi hún aukist mikið og eru íslenskar konur nú með hæstu tíðnina. „Sólargeislun er tiltölulega lítil hér á landi, vegna legu landsins, en notkun ljósabekkja hefur verið tvöföld eða þreföld miðað við nálæg lönd." Þá segir að höfundar greinarinnar hafi kannað sérstaklega hvar á líkamanum sortuæxlin voru og kom í ljós að síðustu áratugi hefur fjölgað hlutfallslega meinum sem staðsett eru á bolnum (bringu, maga og baki), sem bendir til þess að sólarlandaferðir og ljósabekkir komi við sögu. „Athugunartímabilið nær til áranna frá 1955 til 2007. Allan þann tíma voru sólarlandaferðir að aukast, en athygli vekur að notkun ljósabekkja varð ekki algeng fyrr en upp úr 1980 og jókst mest eftir 1990, á sama tíma og tíðni sortuæxla jókst mjög hratt, einkum meðal yngri kvenna," segir ennfremur. Þá er bent á að á allra síðustu árum hafi heldur dregið úr tíðninni hjá konum, sem sumir vilja þakka árveknisátaki gegn ljósabekkjanotkun og fækkun sólbaðsstofa. Samkvæmt upplýsingum frá Krabbameinsskrá Krabbameinsfélagsins greinast nú að meðaltali 50 manns á ári með ífarandi sortuæxli í húð en fyrir þrjátíu árum greindust um 6 á ári.
Mest lesið Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Fleiri fréttir Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Sjá meira