Einn almannatengill á hvern fréttamann 28. maí 2010 12:50 Um einn almannatengill er á hvern fréttamann á Íslandi, en fréttamönnum hefur fækkað um þriðjung á nokkrum árum.
Um einn almannatengill er á hvern fréttamann á Íslandi, en fréttamönnum hefur fækkað um þriðjung á nokkrum árum. Þeir Þorbjörn Broddason, félagsfræðiprófessor, og Ragnar Karlsson, félagsfræðingur, telja að starfandi séu nokkurnveginn jafnmargir almannatenglar og blaða- eða fréttamenn á Íslandi um þessar mundir. Samkvæmt nýrri úttekt þeirra eru um 271 í hvorum hóp, en í sömu úttekt kemur fram að starfandi fréttamönnum hafi fækkað um rúman þriðjung síðan 2006. Ragnar setur í samtali við fréttastofu fyrirvara um að þessar tölur séu aðeins nálgun við raunverulegan fjölda starfandi almannatengla og fréttamanna. Þær byggi á félagatali blaðamannafélagsins og póstlista almannatengslafélagsins, en lýsi þrátt fyrir það vægi almannatengslaþjónustu í upplýsingaflæði. „Ef við gefum okkur það að þessar tölur séu nærri réttu lagi, þá segir þetta okkur að það er aukin ásókn þrýstihópa, fyrirtækja og stofnana að ýta að fréttamönnum tilbúinni umfjöllun um mál og málefni á sama tíma og það kreppir að hjá fjölmiðlum," segir Ragnar. Ragnar segir að eftir því sem meira kreppi að fjölmiðlum og fréttamennsku, þeim mun meiri líkur séu á því að þeir reiði sig á tilbúið efni frekar en sjálfstæða efnisöflun. Í rannsóknarskýrslu Alþingis kemur til dæmis fram að umfjöllun um fjármálafyrirtæki í aðdraganda hrunsins hafi að verulegu leyti mátt rekja til efnis frá fyrirtækjunum sjálfum. Í fjórum af hverjum fimm fréttum fjölmiðla um fjármálafyrirtækin hafi sjálfstæð efnisöflun og greinandi umfjöllun verið lítil eða engin.
Mest lesið Úkraína fái tryggingar sem jafngilda 5. greininni Erlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Erlent Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Innlent Rannsaka hvort feðgarnir fengu herþjálfun á Filippseyjum Erlent Meðalbílaleigubíllinn verði fyrir mestum áhrifum Innlent Fjölgun landsmanna það eina sem hafi komið í veg fyrir tekjufall Rúv Innlent Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Innlent Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Innlent Umferðarslys á Breiðholtsbraut Innlent Fleiri fréttir Meðalbílaleigubíllinn verði fyrir mestum áhrifum Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Fjölgun landsmanna það eina sem hafi komið í veg fyrir tekjufall Rúv Umferðarslys á Breiðholtsbraut Orð gegn orði um samskipti innan almannavarnarnefndar Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Faðir sem missti þrjú börn í Súðavík tjáir sig um uppgjör rannsóknarnefndar Bíll bilaði og Hvalfjarðargöngum lokað um stund Kanna áhuga á mögulegu framboði Guðlaugs í borginni Vistunin sé kerfisbundið brot á mannréttindum Hvorki álit né vangaveltur um ábyrgð einstaklinga í skýrslunni Þau eru tilnefnd sem maður ársins Lögðu hald á sautján skotvopn og skotfæri um helgina Stór mál standa enn út af Í takt við það sem verið hefur Aðalsteinn gefur kost á sér í oddvitasæti og fer í leyfi Bein útsending: Kynna skýrslu um snjóflóðið í Súðavík Þurftu að lenda í Liverpool á leið til Manchester Súðavíkurskýrslan afhent forseta Alþingis Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Heyrði skothvellina á Bondi strönd Vinstri beygjan bönnuð Sinntu fimmtán málum í tengslum við Iceguys tónleikana „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Magnea sækist eftir 2.-4. sæti á lista Samfylkingar Komu sér fyrir í ruslageymslu og kveiktu þar eld Vinna að því að koma upp efnagreiningu í neyslurýmum Ekki mótfallin Fljótagöngum en ekki með nýrri forgangsröðun Fleiri lífeyrisþegar og leikskólaforeldrar sem þurfa jólaaðstoð „Mjög erfitt starf tilfinningalega“ Sjá meira