Strætó kominn á vetraráætlun 23. ágúst 2010 11:22
Vetraráætlun Strætó hefur tekið gildi sem þýðir að tíðni ferða eykst á ný og verður svipuð og síðastliðinn vetur. Jafnframt breytist akstur um Grafarvog og Grafarholt nokkuð með nýrri vetraráætlun. Tíðni strætóferða eykst á níu strætóleiðum með nýrri vetraráætlun, að því er fram kemur í tilkynningu. Leiðir 2, 3, 4, 11, 12, 14 og 15 aka nú á 15 mínútna tíðni á annatíma, það er 6:30-9:00 og 14:00-18:00, á virkum dögum í stað 30 mínútna tíðni í sumar, og leiðir 1 og 6 aka á 15 mínútna tíðni frá kl. 6:30 til kl. 18 á virkum dögum. Fram kemur í tilkynningunni að árstíðabundnar breytingar á akstri Strætó fylgi eftirspurn. Jafnan dragi úr notkun strætó yfir sumartímann þegar skólar séu ekki starfandi og fólk taki sumarfrí. Eftirspurnin eykst á ný upp úr miðjum ágústmánuði sem er mætt með aukinni tíðni ferða yfir veturinn.Breytingar í Grafarvogi og Grafarholti Með nýrri vetraráætlun breytist jafnframt akstur um Grafarvog og Grafarholt nokkuð, því héðan í frá mun leið 6 tengja saman flest hverfi Grafarvogs og fara um Borga- og Staðahverfi á 15 mínútna fresti á virkum dögum en á 30 mínútna fresti á kvöldin og um helgar. Leið 6 mun jafnframt aka um Grafarholtið á kvöldin og um helgar og þannig tengja hverfið við nánast allt frístundastarf í Grafarvogi á þeim tímum. Leiðir 31 og 32 sem áður keyrðu um Grafarvoginn munu hins vegar hætta akstri. Þessar breytingar í Grafarvogi voru unnar af þverpólitískum vinnuhópi og voru kynntar fyrir íbúum svæðisins á íbúafundi þann 14. janúar 2010. „Talningar okkar síðustu árin hafa sýnt að farþegar í Grafarvogi hafa notað leið 6 mun meira en 31 og 32, jafnvel þótt þeir hafi þurft að ganga lengra í strætó. Því er farin þessi leið að færa leið 6 nær íbúum hverfisins, sem hefur það m.a. í för með sér að aksturstíðni um hverfið eykst á dagtíma og börn geta ferðast um hverfið til frístundastarfs án þess að skipta um vagn," segir Einar Kristjánsson, sviðsstjóri skipulags- og þróunarsviðs Strætó bs, í tilkynningunni. „Breytingarnar fela ekki í sér sparnað fyrir Strætó, en það er von okkar að með þessu sé þjónustan betur sniðin að þörfum íbúa Grafarvogs."
Mest lesið Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Innlent Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Innlent Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Innlent Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Innlent Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Erlent Ætlar að áfrýja dómnum Innlent „Við munum ná markmiðum okkar“ Erlent Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Innlent Fleiri fréttir Skelfur við Landmannalaugar Vonbrigði, götulokanir í almyrkva og handbolta-hástökkvari Fara fram á varðhald á grundvelli almannahagsmuna Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Með áfallastreituröskun eftir hópárás á Austurvelli Slökkti sjálfur eldinn Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Ætlar að áfrýja dómnum Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Meirihluti aðildarfyrirtækjanna andvígur Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Kannast ekki við afskipti af Bandero og uppkvaðning í Edition málinu Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Sjá meira