Nígeríumenn vilja að íslenska lögreglan stöðvi breskan svindlara 19. nóvember 2010 12:16
Breskur svikahrappur, sem staddur er hér á landi, notar viðskipti með íslenska skreið til að féfletta kaupendur í Nígeríu. Sendiherra Nígeríu á Íslandi varar við svikaranum, fyrir hönd þeirra landsmanna sinna, sem hafa verið blekktir. Það má segja að þetta séu svonefnd Nígeríusvik með öfugum formerkjum, hér sé verið að svíkja Nígeríumenn en ekki öfugt, sem þekkt er til margra ára. Bretinn, sem af og til hefur komið hingað í fjöl mörg ár, þekkir vel til skreiðarmarkaðarins hér á landi. Mikil spurn er nú eftir skreið í Nígeríu og er íslensk premium skreið í þvílíkum hávegum höfð þar í landi, að kaupendur eru fúsir til að greiða fyrirfram fyrir hana. Og það ástand er Bretinn einmitt að nota sér. Fyrr á árinu kom skreiðarkaupmaður frá Nígeríu hingað til lands til að grennslast fyrir um skreiðarfarm, sem hann var búinn að greiða fyrir en hafði ekki fengið. Allir pappírar virtust vera eðlilegir nema heimilisfang íslenska sölufyrirtækisins, sem var: Þrumuvallagata númer 620 - Húsavík-Ísland. Bretinn hefur gjarnan notað íslenska milliliði, eða leppi, sem ekki vita endilega hvers kyns er. Einn slíkan notaði hann nýverið til að kaupa tvo gáma af þriðja flokks skreið fyrir slikk, dreifði farminum í fjóra gáma einhvernstaðar á leiðinni, og seldi þá alla óséða sem fyrsta flokks skreið á toppverði. Þau svik ein, nema tugum milljóna króna. Nígeríumenn vilja að íslenka lögreglan grípi í taumana. En erfitt er um vik þar sem hann notar íslenska leppi, og er því ekki sjálfur brotlegur á Íslandi. Hann er breskur að uppruna, brotin eru framin gegn Nígeríumönnum í Nígeríu og hann er búsettur á Gíbraltar, sem hefur ekki framsalssamninga við Ísland eða Nígeríu.
Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Fleiri fréttir Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi Sjá meira